Íslenskir skákmenn sitja sem fyrr úti að tafli. Gauti Páll tekur þátt á EM áhugamanna í Zagreb og Adam og Jósef tefla í Olomouc í Tékklandi

EM áhugamanna

EM áhugamanna fer fram í Zagreb í Króatíu dagana 14.-21. ágúst. Gauti Páll Jónsson (2071) teflir í flokki skákmanna með minna en 2300 skákstig.

Gauti gerði í gær jafntefli í gær við króatískan heimamann (2020). Gauti hefur 3 vinninga að loknum sex umferðum og er í 17.-28. sæti.

Sjöunda umferð fer fram í dag.

Gauti er nr. 23 í stigaröð 50 keppenda.

Olomouc Chess Summer 

Jósef að tafli í Olomouc. Mynd: OS

Bræðurnir Adam (1837) og Jósef Omarssynir (1617) taka þátt í c-flokki Olomouc Chess Sumer sem fram fer 13.-20. ágúst.

Sjöunda umferð fór fram í gær. Þeir töpuðu báðir. Adam hefur 3 vinninga en Jósef hefur 2½ vinning.

Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag.

- Auglýsing -