Vishty Anand mætti á setningu mótsins í gær..

EM taflfélaga hefst í dag í Mayrhofen í Austurríki. Fimm íslensk taflfélög taka þátt. Fjögur í opnum flokki og eitt í kvennaflokki. Aldrei hafa fleiri íslensk lið tekið þátt. Víkingklúbburinn mætir rúmensku ofursveitinni CSU ASE Superbet og þar tefla á fyrsta borði Jóhann Hjartarson og Vishy Anand, fyrrum heimsmeistari í skák og núverandi varaforseti FIDE.

Magnús Carlsen, sem teflir fyrir norska félagið Offerspill, mætir til leiks í dag og teflir sína fyrstu kappskák síðan hann tapaði fyrir Hans Niemann í frægri skák. Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélag Akureyrar mætast í innbyrðis viðureign.

Fjölnir mætir belgískri sveit.

Taflfélag Garðabæjar tekur þátt í kvennaflokki og mætir sterkri enskri sveit.

 

 

- Auglýsing -