Víkingaklúbburinn vann sigur í sjöttu og næstsíðustu umferð EM taflfélaga sem fram fór í dag. Taflfélaga Reykjavíkur gerði jafntelfi en aðrar viðureignir töpuðust. TR og Víkingaklúbburinn mætast í lokaumferðinni á morgun.

Taflfélag Reykjavíkur gerði 3-3 jafntelfi við belgíska sveit. Ingvar Þór Jóhannesson og Alexander Oliver Mai unnu.

Víkingaklúbburinn vann stórsigur, 5-1, á klúbb frá Lúxemborg. Óskar Bjarnason gerði jafntefli við Víkinginn Davíð Kjartansson


Fjölnismenn töpuðu með minnsta mun sveit frá Ísrael. Róbert Lagerman vann sína skák. Nafni hans Ris vann einnig.

Skákfélag Akureyrar tapaði fyrir finnskri sveit. Rúnar Sigurpálsson vann.
Staða íslensku liðanna (styrkleikaröð í sviga)
- 25. (23) Taflfélag Reykjavíkur 7 stig
- 27. (37) Víkingaklúbburinn 7 stig
- 52. (35) Fjölnir 5 stig
- 55. (58) Skákfélag Akureyrar 4 stig
70 sveitir taka þátt
Í kvennaflokki tapaði Taflfélag Garðabæjarmeð fullu húsi fyrir sterkri serbneskri sveit.

Staða íslensku liðanna (styrkleikaröð í sviga)
- 16 (15) Taflfélag Garðabæjar 3 stig
17 sveitir taka þátt.
- Heimasíða mótsins
- Facebook-síða – myndir (Fiona)
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar (opinn flokkur) – hefjast kl. 12
- Beinar útsendingar (kvennaflokkur) – hefjast kl. 12
















