Lokaumferð EM taflfélaga fór fram í dag í Mayrhofen í Austurríki. Jafntefli varð í viðureign Taflfélags Reykjavíkur og Víkingaklúbbsins. Íslandsmeistarar Taflfélags Reykjavíkur urðu efstir íslenskra félaga.
Fjölnir vann góðan sigur en Skákfélag Akureyrar tapaði. Taflfélag Garðabæjar vann stórsigur í lokaumferðinni í kvennaflokki.

Jafntefli varð í viðureign Víkingaklúbbsins og Íslandsmeistara Taflfélags Reykjavíkur. Hjá Víkingum unnu Jóhann Hjartarson og Páll Agnar Þórarinsson. Hjá TR unnu Þröstur Þórhallsson og Alexander Oliver Mai.


Skákdeild Fjölnis vann góðan sigur á hollenskum klúbb. Thybo, Sigurbjörn og Jóhann Arnar unnu.


Akureyringar töpuðu fyrir austurrísku félagi. Haraldur vann á sjötta borði.
Staða íslensku liðanna (styrkleikaröð í sviga)
- 24. (23) Taflfélag Reykjavíkur 8 stig
- 26. (37) Víkingaklúbburinn 8 stig
- 40. (35) Skákdeild Fjölnis 7 stig
- 61. (58) Skákfélag Akureyrar 4 stig
70 sveitir tóku þátt.

Í kvennaflokki vann TG stórsigur á austurrískri sveit. Lenka, Jóhanna og Halla unnu.
Staða íslensku liðanna (styrkleikaröð í sviga)
- 15 (15) Taflfélag Garðabæjar 6 stig
17 sveitir tóku þátt.
Stigabreytingar
Alls hækkuðu liðsmenn íslensku liðanna um 29 skákstig. Ef hins vegar ef íslenskir skákmenn eru skoðaðir eingöngu koma 31 stig inn í íslenskt skákhagkerfi.
Eftirfarandi hækkuðu um 10 stig eða meira

- Gunnar Freyr Rúnarsson, Víkingaklúbbnum (+25)
- Jóhann Arnar Finnsson (Fjölni) (+21)
- Stefán Bergsson (SA) +19
- Lenka Ptácníková (TG) + 16
- Óskar Bjarnason (Félag frá Lúxemborg) +14
- Andri Freyr Björgvinsson (SA) + 14
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (TG) + 13
- Björn Þorfinnsson (Víkingaklúbbnum) +11
- Jóhann Hjartarson (Víkingaklúbbnum) + 11
- Heimasíða mótsins
- Facebook-síða – myndir (Fiona)
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar (opinn flokkur) – hefjast kl. 12
- Beinar útsendingar (kvennaflokkur) – hefjast kl. 12
















