Alls komu sex vinningar í hús hjá íslenska hópnum í 7. umferð Evrópumóts ungmenna í skák í Tyrklandi.
Birkir, Örvar Hólm, Oliver, Matthías og Mikael Bjarki unnu allir. Gunnar Erik og Ingvar Wu gerðu jafntefli en aðrir töpuðu.

Oliver Kovacik vann sannfærandi sigur gegn Azeranum Gadimov. Gadimov þessi hafði líka tapað gegn Birki, fyrr í mótinu, og er nú líklega kominn með nóg af íslensku þjóðinni – í bili. Upp kom nokkuð jöfn staða eftir byrjunina en Oliver fór í aðgerðir á kóngsvæng sem Azerinn réð illa við. Fór hann að veikja ýmsa reiti á miðborðinu þar sem riddari Olivers tók sér bólfestu. Riddari þessi gerði svo úti um skákina með lokaprjóninu, hjónagaffli á f7-reitnum.

Matthías Björgvin Kjartansson vann sína fjórðu skák í röð! Matthías kom vel undirbúinn til leiks gegn Rossolimo-afbrigði hins tékkneska Hladky (2007). Hvítur hafði rýmra tafl en svarta staðan var traust og báðir keppendur hálf planlausir í miðtaflinu. Þegar nálgaðist tímamörkin tók Matthías af skarið með hálfgerðri hellisbúaárás (e. caveman attack) og hvítur missti tökin á stöðunni. Kraftmikill sigur hjá Matthíasi.

Birkir Hallmundarson lagði heimamanninn Dogru. Birkir hóf taflið á sinni uppáhalds byrjun 1. Rf3 en Dogru voru mislagðar hendur í byrjuninni og tapaði manni fyrir engar bætur. Birkir vann svo af öryggi.

Mikael Bjarki Heiðarsson vann kærkominn sigur gegn Lazovski (1411) frá Makedóníu. Í undirbúningi fyrir skákina kom í ljós að Lazovski þessi virtist frekar fyrirsjáanlegur í byrjunarvali; tefldi alltaf kóngs-indverska vörn og lék snemma …e5 gegn öllu. Mikael Bjarki ákvað því að tefla Averbakh-afbrigðið í fyrsta skipti á ævinni – sem má segja að komi í veg fyrir svartur geti leikið e5 strax. Viti menn, Lazovski gekk beint í gildruna, lék e5 einum leik of snemma og tapaði peði. Mikael Bjarki vann svo vel úr yfirburðunum. Góður undirbúningur og öruggur sigur.

Örvar Hólm Brynjarsson hafði sigur á heimamanninum Midem Ali Canel. Örvar hafði búist við hefðbundnu drottningarbragði en Midem tefldi móttekið drottningarbragð. Örvar tefldi af krafti en missti frumkvæðið eftir byrjunina. Midem komst vel inn í skákina en nýtti ekki sín færi og Örvar vann skiptamun í flækjunum. Örvar vann svo sannfærandi úr yfirburðunum.


Íslenski hópurinn fór enn og aftur í fótbolta í kvöld á góðri íþróttaaðstöðu á svæðinu. Mörkin á völlunum eru helst til of lítil svo fá mörk voru skoruð. Ungir sem aldnir lögðu sitt af mörkum og fóru pabbarnir þar fremstir í flokki en þeim tókst vel að loka mörkunum litlu.

Talandi um það þá hefur maturinn á hótelinu verið virkilega góður hingað til og vel veitt af honum. Hlaðborð af mismunandi réttum og eftirréttum.

Pörun 8. umferðar sem hefst 12:00 á morgun. Aleksandr verður áfram í beinni útsendingu á morgun og mætir ísraelskum alþjóðlegum meistara.
Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar
Chess-results















