Kínverskar drottningarfórnir – eru þær eitthvað frábrugðnar öðrum drottningarfórnum? Áreiðanlega ekki, en greinarhöfundur hefur samt alltaf tekið góða og gilda skýringu sem ágætur félagi minn bar fram fyrstur manna; að munurinn lægi í því að á undan drottningarfórn Kínverjanna mætti stundum greina bjölluhljóm. Sá tónn var sannarlega gefinn strax í fyrstu umferð ólympíumótsins í Buenos Aires 1978 en þá töpuðu Íslendingar nokkuð óvænt fyrir Kínverjum sem voru að tefla á sínu fyrsta ólympíumóti. Hollendingurinn Jan Hein Donner var eitthvað að sniglast í kringum borð okkar og lét ummæli falla sem voru eitthvað á þá leið eftir tap Guðmundar Sigurjónssonar á 1. borði að það væri útilokað fyrir stórmeistara að tapa fyrir skákmanni frá Kína. Hvort hann taldi sig með því hafa fengið einhvers konar uppreisn eftir að hafa tapað fyrir Guðmundi á Ólympíumótinu í Lugano ’68 skal ósagt látið. Hitt er svo annað mál að nokkrum dögum síðar horfðu þeir Jan Timman og Max Euwe forseti FIDE furðu lostnir á „orðhákinn mikla“ fá upp þessa stöðu í viðureign Hollendinga og Kínverja:
Ólympíumótið í Buenos Aires 1978; 8. umferð: (STÖÐUMYND 1)
Liu Wenzhe – Donner
16. Dxg6+ Kxg6 17. Bh5+ Kh7 18. Bf7+ Bh6 19. g6+ Kg7 20. Bxh6+
– og svartur gafst upp því mátið er óverjandi, 20. … Kh8 21. Bg7+! Kxg7 22. Hh7 mát.
Með þessari skák óx orðspor Kínverja á leikfléttusviðinu. Við lærðum okkar lexíu og unnum Kínverja örugglega á ólympíumótunum árin 1980, 1984 og 1988. En fremsti stórmeistari Rúmena, Gheorghiu, virtist hafa staðið af sér allar atlögur í Luzern fjórum árum síðar en gáði ekki að sér:
Óympíumótið í Luzern 1982; (STÖÐUMYND 2)
– Sjá stöðumynd 2 –
Gheorghiu – Liu Wenzhe
Eftir einfalda liðskipan, 24. Bd2, er ljóst að sókn svarts hefur runnið út í sandinn. En hvað er að því að hirða f5-peðið?
24. Dxf5?? Dg1+!
– og Gheorghiu gafst upp því að 25. Kxg1 er svarað með 25. … He1 mát!
Í dag er enginn ágreiningur um að Liren Ding, sem á næsta ári mun tefla um heimsmeistaratitilinn við Jan Nepomniachchi, á eina glæsilegustu fórnarskák sem um getur í skáksögunni. Drottningarfórnin í byrjun tafls var í raun aðeins forleikur þess sem á eftir kom en þá rak hver fórnin aðra:
Flokkakeppni í Kina 2017:
Jinshin Bai – Liren Ding
Nimzo-indversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Rf3 0-0 5. Bg5 c5 6. e3 cxd4 7. Dxd4 Rc6 8. Dd3 h6 9. Bh4 d5 10. Hd1 g5 11. Bg3 Re4 12. Rd2 Rc5 13.Dc2 d4 14. Rf3 e5 15. Rxe5(STÖÐUMYND 3)
15. … dxc3!
Drottningarfórnin er alltof freistandi til þess að hægt sé að sleppa henni. Tryggt er að svartur fái hrók og léttan fyrir drottninguna.
16. Hxd8 cxb2+ 17. Ke2?
Betra var 17. Hd2 sem svartur getur svarað með 17. … Hd8 en hvítur getur þá varist með 18. Bd3.
17. … Hxd8 18. Dxb2 Ra4 19.Dc2 Rc3+ 20. Kf3 Hd4!
Þessi glæsilegi leikur skýrir sig sjálfur. Hótunin er 21. … g4+ og mátar. Ekki gengur 21. exd4 vegna 21. … Rxd4+ og drottningin fellur.
21. h3 h5 22. Bh2 g4+ 23. Kg3 Hd2 24. Db3 Re4+ 25. Kh4 Be7+ 26. Kxh5 Kg7 27. Bf4 Bf5 28. Bh6+ Kh7 29. Dxb7 Hxf2
Hótar 30. … Rg3 mát.
30. Bg5 Hh8! 31. Rxf7 Bg6+ 32. Kxg4 Re5+!(STÖÐUMYND 4)
Glæsilegur lokahnykkur. Hvítur gafst upp. Mátið kemur eftir 33. Rxe5 Bf5+ 34. Kh5 Kg7+ 35. Bh6+ Hxh6 mát.
Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku eftir að þeir birtast í Morgunblaðinu. Skákþáttur þessi birtist 17. desember 2022


















