Þverholt
270 Mosfellsbær
Ísland
Chess After Dark menn hafa ákveðið að blása til enn frekari sóknar og kynna til leiks BARION mótaröðina 2023!
Fyrsta mótið fer fram þriðjudagskvöldið 10. Janúar kl 20.00 á Barion Mosó.
Mótin verða fimm í heildina og eru dagsetningarnar á þeim hér:
- 10. Janúar
- 7. Febrúar
- 7. Mars
- 4. Apríl
- 5. September
Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2
Á öllum mótunum verða verðlaun eftirfarandi:
- 50.000 krónur
- 30.000 krónur
- 20.000 krónur
U2000: 10.000 kr gjafabréf á Barion Mosó
U1600: 10.000 kr gjafabréf á Barion Mosó
Öll mótin verða reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.
12 efstu keppendurnir á samanlögðum vinningum (4 af 5 bestu mótum gilda) tefla svo til úrslita fyrstu helgina í október, þar verða verðlaunin eftirfarandi:
- 500.000 krónur
- 300.000 krónur
- 200.000 krónur
Frítt verður inn á öll mótin.
Skráning á fyrsta mótið hér: https://docs.google.com/forms/d/1tFmejwcpXOEXDcFgvGevA0cD2bSieshHgpM9lKDgtjU/edit#responses
Skráðir keppendur hér: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1G6o2E3pm_CIL6nDLNa3MZHLHzvrx9nqO-5zwrIMP–c/edit?resourcekey#gid=473163214
Chess After Dark bræður óska öllum skákmönnum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.










