Hannes að tafli á EM einstaklinga í Natura 2021.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2526) tapaði og vann í umferðum dagsins í gær á umferð Marienbad Open í Tékklandi í gær. Hannes hefur 2½ vinning að loknum fimm umferðum og er í 5.-7. sæti.

Hannes tapaði fyrir tékkneska stórmeistaranum Martin Petr (2508) í 4. umferð en vann Indverjann Adithya A Chukllikkad (2196) í þeirri fimmtu.

Í sjöttu umferð, sem fram fer í dag, teflir Hannes við þýska FIDE-meistarann Christoph Natsidis (2308).

Hannes teflir í 10 manna flokki þar sem meðalstigin eru 2403 skákstig. Hannes er stigahæstur keppenda.

 

- Auglýsing -