Erfiður andstæðingur Hollendingurinn Anish Giri (t.v.) hefur oft reynst Magnúsi Carlsen erfiður. Hann vann skák þeirra sl. þriðjudag. — Ljósmynd/Heimasíða Tata Steel

Anish Giri vann Magnús Carlsen í 4. umferð Tata Steel-mótsins í gær. Fyrsti sigur Hollendingsins á heimsmeistaranum í 12 ár, upp á dag, í kappsák! Nodbirek Abdusattorv er efstur með 3 vinninga ásamt Giri eftir sigur á Írananum Parham Maghsoodloo. Indverjinn geðþekki og Íslandsvinurinn, Praggnanandha, vann næststigahæsta skákmann heims, Ding Liren. Pragga og Fabiano Caruana eru í 3.-4. sæti með 2½. Carlsen er í 5.-9. sæti með 2 vinninga.

Ítarlega frétt þar sem finna má meðal annars skák MC og Giri skírða má finna á Chess.com.

Frídagur er í dag. Fimmta umferð fer fram á morgun. Þá mætast meðal annars Carlsen-Abdusattorov og Pragga-Giri.

Áskorendaflokkur (Challangers)

Mustafa Yilmaz (2609), Velimir Ivic (2585) og Alexander Donchenko (2627) eru efstir með 3 vinninga. Það er teflt í áskorendaflokki í dag.

- Auglýsing -