Sjötta umferð Tata Steel-mótsins í Wijk aan Zee fór fram í gær. Nodbirek Abdusattorov (2713) gerði jafntelfi við Pragga (2684) og er efstur með 4½ vinning. Wesley So (2760) og Fabiano Caruana (2677) unnu Keymer (2696) og Gukesh (2725) en öðrum skákum lauk með jafntefli. Anishi Giri (2764) og Fabi eru í 2.-3. sæti með 4 vinninga. Magnús Carlsen (2859) gerði jafntefli við Jorden Van Foreest (2681) og er aðeins í 10.-11. sæti með 2½ vinning.
♟| This was round 6 of the 2023 #TataSteelChess Tournament! Caruana and So won their games in the Masters, and Vaishali, Donchenko and l’Ami als managed to win theirs. pic.twitter.com/MpXiPQtDyU
— Tata Steel Chess (@tatasteelchess) January 20, 2023
Áskorendaflokkur (Challangers)
Mustafa Yilmaz (2609) og Alexander Donchenko (2627) eru efstir með 4½ vinning. Þeir mætast í dag.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13:15)

















