Norðurlandamót skólasveita hófst í gær í Fredericia í Danmörk. Um er að ræða 2021-mótið sem ekki náðist að halda sl. haust.
Vatnsendaskóli tekur þátt í grunnskólasflokki en Lindaskóli í barnaskólaflokki.
NM barnaskólasveita
Lindaskóli hóf mótið í gær með 3-1 sigri á Svíum. Í fyrstu umferð dagsins í dag tapaði skólin með minnsti muni 1½–2½ gegn Danmörku II.
Birkir Hallmundarson hefur byrjað vel og unnið báðar sínar skákir.
Lið Lindaskóla skipa
- Birkir Hallmundarson (1516)
- Sigurður Páll Guðnýjarson (1501)
- Engilbert Viðar Eyþórsson (1433)
- Örvar Hólm Brynjarsson (1254)
- Nökkvi Hólm Brynjarsson (1022)
NM grunnaskólasveita
Vatnsendaskóli gerði 2-2 jafntefli í fyrstu umferð gegn Svíum. Í annarri umferð í morgun tapaði sveitin 1-3 fyrir Danmörku III.
Lið Vatnsendaskóla skipa
- Mikael Bjarki Heiðarsson (1660)
- Tómas Möller (1513)
- Jóhann Helgi Hreinsson (1412)
- Arnar Logi Kjartansson (1190)
- Guðmundur Orri Sveinbjörnsson (1116)
Tvær umferðir til viðbótar eru tefldar í dag. Þær hefjast kl. 13 og 17.
- Auglýsing -



















