Abdusattorov vann í gær. Mynd: Lennart Ootes/Tata Steel Chess Tournament 2023

Nodbirek Abdusattorov (2713) hefur eins vinnings forskot á Tata Steel-mótinu í Wijk aan Zee. Í sjöundu umferð sem fram fór í gær vann hann Indverjann Arjun Erigaisi (2722). Úsbekinn ungi hefur 5½ vinning.

Pragga (2684) vann Jorden Van Foreest (2681) og Wesley So lagði Gukesh (2725) að velli. Þeiru eru í 2.-5. sæti með 4½ vinning ásamt Anish Giri (2764) og Fabiano Caruana (2766) gerðu báðir jafntefli. Heimsmeistarinn Magnús Carlsen knésetti Richard Rapport (2740) en er aðeins í 7.-9. sæti með 3½ vinning. Afar ólíklegt að hann nái að blanda sér í toppbaráttuna.

Áttunda umferð af þrettán fer fram í dag. Abdusattorov teflir við Levon Aronian (2735), Caruana mætir Magnúsi.

Nánar á Chess.com.

Áskorendaflokkur (Challangers)

Alexander Donchenko. Mynd: Lennart Ootes/Tata Steel Chess 2023

Alexander Donchenko (2627) vann Mustafa Yilmaz (2609) og er efstur með 5½ vinninga. Annar ungur Úsbeki, Javokhir Sindarov (2654) er annar með 5 vinninga.

- Auglýsing -