Carlsen vann Caruana. Mynd: Jurriaan Hoefsmit/Tata Steel Chess Tournament 2023

Nodbirek Abdusattorov (2713) hélt vinningsforskoti á Tata Steel-mótinu með jafntefli gegn Levon Aronian (2735) í áttundu umferð gær. Úsbekinn ungi hefur 6 vinninga að loknum átta umferðum. Anish Giri (2764) og Wesley So (2760) sem gerðu báðir jafntefli í gær eru í 2.-3. sæti með 5 vinninga.

Magnús Carlsen (2859) vann Fabiano Caruana (2766). Önnur sigurskákin í röð. Norski heimsmeistarinn hefur 4½ vinning og er líklegur til að blanda sér í toppbaráttuna. Kominn í 4.-7. sæti.

Frídagur er í dag. Níunda umferð fer fram á morgun. Abdusattorov mætir Vincent Keymer (2696), Carlsen teflir við Gukesh (2725), Giri sest andspænis Ding Liren (2811) og So freistar þess að vinna Maghsoodloo. (2719).

Nánar á Chess.com.

Áskorendaflokkur (Challengers)

Alexander Donchenko. Mynd: Lennart Ootes/Tata Steel Chess 2023

Alexander Donchenko (2627) er efstur með 6 vinninga. Mustafa Yilmaz (2609)  og úsbekinn ungi Javokhir Sindarov (2654) eru í 2.-3. sæti með 5½ vinning.

- Auglýsing -