Tvö unglingalandslið eru á leiðinni erlendis á næstum vikum. Annars vegar á NM ungmenna sem fram fer í Ósló dagana 17.-19. febrúar og hins vegar í lands/borgarkeppni sem fram fer á Írlandi 3.-5. mars nk.
NM ungmenna á sér langa sögu. Nærri hálfrar aldar gamla. Mótið hefur farið fram á hverju ári og mótin fóru meira að segja fram árlega á Covid-tímanum. Ísland sendir 10 fulltrúa til leiks. Við val liðsins sem var stuðst við skákstig 1. desember sl. Fyrir hönd Íslands tefla.
A-flokkur (u20)
- IM Vignir Vatnar Stefánsson (2466)
- FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2336)
B-flokkur (u17)
- Benedikt Briem (2096)
- Gunnar Erik Guðmundsson (1968)
C-flokkur (u15)
- Matthías Björgvin Kjartansson (1759)
- Mikael Bjarki Heiðarsson (1591)
D-flokkur (u13)
- Jósef Omarsson (1698)
- Sigurður Páll Guðnýjarson 1490)
E-flokkur (u11)
- Birkir Hallmundarson (1551)
- Örvar Hólm Brynjarsson (1252)
Liðsstjórar og þjálfarar eru Helgi Ólafsson og Ingvar Þór Jóhannesson.
Lands/borgarkeppni á Írlandi
Skáksamband Ísland fékk nokkrum vikum boð um taka þátt í lands/borgarkeppni á Írlandi. Félagaskapur sem kenndur er við Chessmates. SÍ þáði það boð. Ákveðið var að senda lið til leiks en boðið gengi til þeirra sem ekki tefldu á NM ungmenna. Hvort að Íslandi standi til boða að taka þátt í þessu móti í framtíðinni er ekki ljóst en það væri óskandi. Við val liðsins var stuðst við skákstig 1. janúar.
Liðin sem taka þátt eru:
- Berlín
- Côte d’Azur-Var/ Mónakó
- Ísland
- Írland
- London
- París
- Rotherdam
- Sachsen-Anhalt
Um er að ræða liðakeppni. Tíu eru í hverju liði og þurfa tveir að vera í hverjum aldursflokki.
Eftirtaldir tefla fyrir Íslands hönd á Írlandi.
- U20: Stephan Briem (2141)
- U20: Arnar Milutin Heiðarsson (2020)
- U18: Benedikt Þórisson (1746)
- U18: Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson (1742)
- U16: Ingvar Wu Skarphéðinsson (1867)
- U16: Iðunn Helgadóttir (1690)
- U14: Tobías Matharel (1472)
- U14: Guðrún Fanney Briem (1457)
- U12: Engilbert Viðar Eyþórsson (1415)
- U12: Sigþór Árni Sigurgeirsson (1265)
Liðsstjóri og þjálfari eru Ingvar Þór Jóhannesson.

















