Menningarfélagið Miðbæjarskák, í góðu samstarfi með Snooker og Pool Lágmúla, heldur skákmót sunnudaginn 19. febrúar næstkomandi klukkan 13. Tefldar verða 9. umferðir með tímamörkunum 3+2. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Gera má ráð fyrir að mótshaldið standi til ca. 15:00-15:30. Snooker og Pool er til húsa í Lágmúla 5, Reykjavík.

Þátttökugjöld: 1000 krónur. Þetta gildir fyrir alla þátttakendur.

Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti.

Snooker og Pool bjóða upp á afslætti á veitingum og köldum á meðan mótinu stendur.

Skráning í mótið fer í gegnum skráningarform, en skráning miðar við 30 manns. Mótshaldarar mæla með að keppendur mæti tímanlega til að staðfesta skráningu á skákstað.

Þetta er í fimmta sinn sem Miðbæjarskák heldur mót með Snooker og Pool.

  1. mótið 22. maí á chess-results.
  2. mótið 6. nóvember á chess-results.
  3. mótið 11. desember á chess-results.
  4. mótið 14. janúar á chess-results.

Skránngarform 

Þegar skráðir 

- Auglýsing -