Margeir að tafli á Rilton. Mynd: Heimasíða mótsins/Lars OA Hedlund

Graz Open hófst í gær í Austurríki. Einn okkar virkustu skákmanna, stórmeistarinn Margeir Pétursson (2448), er meðal keppenda. Hann vann Barböru Skuhala (2099) frá Slóveníu í fyrstu umferð í gær. Tvær umferðir fara fram í dag.

171 keppandi frá 29 löndum taka þátt í efstu flokknum. Þar af eru 9 stórmeistarar. Margeir er nr. 11 í stigaröð keppenda.

———–

Guðmundur Kjartansson (2453) tók þátt í Dolomitenbank Open í Lienz í Austurríki 11.-18. febrúar.

Guðmundur náði sér aldrei á strik á mótinu. Hlaut 5½ vinning af 9 mögulegum.

- Auglýsing -