Barátta gegn Berlín er framundan hjá íslenska liðinu á 8-liða mótinu Chess Mates á Írlandi. Fyrir daginn var íslenska liðið í þokkalegri stöðu og nægði sigur í 3. umferðinni, síðustu umferð riðlakeppninnar, til þess að komast í undanúrslit. Afturfæturnir voru hinsvegar þeir sem gengið var á í dag og íslenska liðið laut í dúk og keppir um 7. sætið á morgun eftir tvö töp í dag.
Fyrirfram var lið Monaco sterkara á pappírnum en miðað við úrslit hingað til mátti búast við nokkuð jöfnum möguleikum. Skemmst er frá því að segja að lítið gekk upp í þessari viðureign og á endanum lenti íslenska liðið í 2-8 skell.


Það voru aðeins Arnar Milutin og Iðunn sem héldu uppi heiðri landans í þessari viðureign. Eitthvað var um óheppni hjá íslenska liðinu en heilt yfir var lið Monaco einfaldlega betra í þessari viðureign.

Þessi úrslit þýddu að framundan var viðureign við London sem myndi skera úr um hvor sveitin væri að tefla um 5. sætið og hvor myndi tefla um 7. sætið.
Skemmst er frá því að segja að íslenska sveitin sá engan veginn til sólar í þessari viðureign og annar skellur leit dagsins ljós.

Eina skákin sem vannst var hjá Stephan Briem sem átti það fyllilega inni eftir mikla óheppni í umferðunum á undan. Arnar Milutin missti vænlega stöðu niður en ekki mikið við hann að sakast þar sem fullt hús var í umferðunum á undan. Nokkur jafntefli komu í hús en íslenska liðið ógnaði í raun aldrei þessu London liði.

Framundan er því viðureign á morgun við lið Berlínar þar sem heiðurinn er að veði. Íslenska liðið hefur ekki enn unnið liðssigur þrátt fyrir dauðafæri og væri gott að enda þetta mót á góðum nótum.
Mótahaldið hefur gengið nokkuð snuðrulaust hjá Írunum og keppendur almennt ánægðir með mótið. Bæði eru keppendur að fá mikilvæga og góða keppnisreynslu gegn andstæðingum sem eru nær þeim í styrkleika en í venjulegum „Sviss-mótum“ og þar að auki er mikið lagt upp úr félagslega þættinum. Mótið heitir jú, Chess Mates eða „skák-félagar“ og stefnan er fyrst og fremst að keppendur hafi gaman, fái góða reynslu og kynnist góðum félögum.

Þessi stefna var til sýnis í kvöldverði dagsins þar sem samlöndum var nánast neitað að sitja saman og keppendum dreift á borð og hvattir til að kynnast og eiga samræður við fólk frá öðrum löndum og kynnast þeirra menningu og bakgrunni. Á meðan beðið var eftir mat var dreift mynd af 15 sögulegum skákmönnum og borðin kepptust um að nefna meistarana á myndunum, sem flestir voru jú vel þekktir.
Að kvöldverði loknum tók við hraðskákmót þar sem raðað var í fjögurra manna lið, og aftur góð dreifing þar sem krakkarnir fengu liðsfélaga frá ýmsum löndum og á ýmsum aldri. Eftir harða hraðskákbaráttu gengu flestir til rekkju þreyttir eftir langan en skemmtilegan dag!

Lokaumferðin hefst klukkan 09:00.
Mótið á chess-results
















