Fyrir lokaumferð „Kviku deildar“ Íslandsmóts skákfélaga hnigu öll rök til þess að Víkingaklúbburinn myndi bera sigur úr býtum jafnvel þó fram undan væri viðureigin við eina keppinautinn um titilinn, Taflfélag Garðabæjar, sem hafði í næstsíðustu umferð tapað fyrir Íslandsmeisturum Taflfélags Reykjavíkur (sem þó höfðu misst alla von um sigur) 3½:4½. Margir ályktuðu að Garðbæingar væru búnir að missa móðinn en annað kom á daginn. Munurinn á liðunum var þessi: Víkingaklúbburinn var með 50½ vinning – og TG með 47 vinninga. Víkingaklúbburinn mátti tapa 2½:5½ en samt vinna mótið.
Fyrir úrslitaslaginn flutti hinn röggsami liðsstjóri TG, Jón Þorvaldsson, mikla eldræðu yfir liðsmönnum sínum og harðbannaði allt „jafntefliskvak“ meðan á viðureigninni stæði. Og hvað gerðist? TG vann 7½:½ og er því Íslandsmeistari 2023.
Vignir Vatnar er nýr stórmeistari Íslendinga
Vignir Vatnar Stefánsson, sem náði lokaáfanga sínum að stórmeistaratitli á dögunum, hafði uppfyllt flest skilyrði til krækja sér í þessa nafnbót en vantaði þó einn áfanga úr opnu móti. Slík mót eru stundum auðveldara viðfangs fyrir menn í áfangaleit – en þó ekki alltaf. Samsetning opinna móta sem leyfa ótakmarkað stigabil valda því. Vignir Vatnar átti möguleika lengi vel á hinu opna Evrópumóti einstaklinga á dögunum en náði þó ekki settu marki. En mætti strax í annað opið mót í Arandjalovac í Serbíu. Fyrir síðustu umferð var hann kominn í þá óskastöðu að tefla um efsta sætið og lokaáfangann að stórmeistaratitli. Og sló tvær flugur í einu höggi; sigurvegari mótsins með 7 vinninga af 9 mögulegum og bíður útnefningar FIDE sem alþjóðlegur stórmeistari. Hann er vel að titlinum kominn og lætur örugglega ekki staðar numið þó þessum áfanga sé náð. Spennandi skák Vignis í lokaumferðinni fylgir hér:
Arandjalovac 2023: 9. umferð:
Dimitris Alexakis- Vignir Vatnar Stefánsson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. f3 Rc6 6. c4 e6 7. Rc3 Be7 8. Be3 O-O 9. Dd2 d5 10. exd5 exd5 11. O-O-O Re5 12. cxd5 Rxd5 13. Rdb5 Rxe3 14. Dxe3 Rd7 15. Rd6
Þetta hafði allt sést áður. Leikur hvíts á ekki að valda svarti neinum sérstökum vandræðum.
15. … Bxd6 16. Hxd6 Da5 17. Bb5 Rb6 18. h4!?
Fullhægfara.
18. … Be6 19. h5 Hac8 20. Hxe6
20. … fxe6?
Mistök. Best er 20. … Rd5! og svartur stendur til vinnings.
21. Dxe6+ Kh8 22. h6 Hg8?!
Spennan var greinilega farin að taka sinn toll. 22. … Hxc3+ dugar til jafnteflis en Vignir varð að vinna!
23. De5?
Eftir 23. Kb1! stendur hvítur til vinnings.
23. … Dxa2!
Hví leikur hvítur ekki 24. Bd3 gæti einhver spurt. Hótunin er þá 25. hxg7+ Hxg7 26. Hxh7 og mátar. En þá hefði Vignir átt snjalla vörn, 24. … Da1+ 25. Bb1 Dxb2+! 26. Kxb2 Rc4+ og drottningin á e5 fellur.
24. Hh4 Dd5
Knýr fram drottningaruppskipti. Eftirleikurinn er auðveldur.
25. Dxd5 Rxd5 26. Bd7 Hc7 27. Be6 Rxc3 28. bxc3 He8 29. hxg7+ Hxg7 30. Bf5 He2 31. g4 He3 32. Be4 Hxc3+ 33. Kd2 Hc5 34. Hh6 a5 35. Hd6 He7 36. Hd8 Kg7 37. Ke3 a4 38. Ha8 Hc3+ 39. Kf4 b5 40. Ha5 a3 41. Hxb5 Hf7+ 42. Kg3 Ha7 43. Hb1 a2 44. Ha1 h6 45. Kf2 Kf6 46. Ke2 Ke5 47. Kd2 Kd4 48. Ke2 Hb3 49. 49. Hd1 Kc3 50. Hc1+
– og gafst upp um leið.
Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku eftir að þeir birtast í Morgunblaðinu. Skákþáttur þessi birtist 25. mars 2023

















