Skákþing Norðlendinga hófst í gær, 14. apríl. 30 keppendur mættu til leiks. Þrejár umferðir voru tefldar í gærkveldi og eftir þær eru þeir Stefán Bergsson og Áskell Örn Kárason efstir með þrjá vinninga. Næst koma Þorleifur Karlsson, Markús Orri Óskarsson, Elsa María Kristínardóttir og Sigurbjörn Hermannsson með 2,5 vinning.
Fjórða umferð hefst núna kl. 11 og verða tefldar fjórar umferðir í dag. Lokaumferðirnar tvær verða svo tefldar á morgun, og þá fer einnig fram Hraðskákmót Norðlendinga.
- Auglýsing -













