Það vantar ekki vinningsskákirnar í heimsmeistaraeinvígi þeirri Nepomniachtchi og Ding Liren! Eftir fimm einvígisskákir hafa þrjár skákir unnist og aðeins tvær endað með jafntefli. Erfitt er að spá í spilin en Nepo vissulega komin með frumkvæði eftir sigur í skák dagsins.
Nepo hóf taflið á 1.e4 uppáhaldsleik sínum og tefldi spænska leikinn líkt og í fyrstu einvígisskákinni. Í þetta skiptið breytti hann til, í stað Bxc6 „seinkuðu uppskiptaafbrigði“ varð d3 leikur fyrir valinu. Anti-Marshall afbrigði en flestir vilja ekki fara í Marshall afbrigðið sem Ding er sérfræðingur í og erfitt fyrir hvítan að fá eitthvað gegn því.
Skákskýrendur voru á því að plan Ding með …Bd8 og …Re7 hafi verið misráðið og í miðtaflinu missti hann aðeins flugið þega rhann drap á f5. Nepo tefldi í kjölfarið af miklum krafti og fleygði g-peði sínu í átt að kóngi Kínverjans. Þrátt fyrir drottningarkaup var mátnet óumflýjanlegt nema með liðstapi og Ding lagði niður vopnin.
Einkunnaspjaldið:

Ian Nepomniachtchi wins his second game to pull one point clear in the match! #NepoDing 👏 pic.twitter.com/H3eKVwpBEk
— Chess.com (@chesscom) April 15, 2023
- Heimasíða heimsmeistaraeinvígisins
- Beinar lýsingar (FIDE)
- Beinar útsendingar (Chess24)
- Beinar lýsingar (Chess.com)















