Heimsmeistaraeinvígið hélt áfram í dag eftir frídag í gær. Ding Liren stýrði hvítu mönnunm í 10. skákinni gegn Ian Nepomniachtchi. Enski leikurinn varð fyrir valinu að þessu sinni, fjögurra riddara varíanturinn.

Hér lék Ding Liren 4.e4!? en sá leikur stemmir einmitt við lichess aðganginn iRobot3 sem var nefndur hér í umfjöllun um 9. skákina. Í „stóra lekanum“ sáust skákir með 4.Dc2!? sem Ding hefur væntanlega hætt við að nota af þeim sökum.

Úr varð nokkuð hvass varíantur þar sem hvítur tekur á sig tvípeð fyrir hættuleg færi

Nepo var samt greinilega vel undirbúinn hér því hann lék besta leiknum skv. tölvunum 10…Kf8! Svartur má ekki hróka útaf 11.Bh6 sem vinnur skiptamun og meira að segja 11.Bg5 er mjög sterkur.

Nepo kom Ding greinilega á óvart með …Bc5 leik sínum.

Fyrsti nýi leikurinn var 14.0-0 hjá Ding Liren í þessari stöðu.

Nepo var hér með mun betri tíma, kannski ekki nema von þar sem hann hafði sjálfur haft þessa stöðu með hvítu mönnunum áður í Titled Tuesday móti. Nepo lék 14.h4 í sinni skák en Ding breytir hér útaf.

Í kjölfarið komu mjög þvingandi leikir, 14…h4 hjá Nepo og svo 15….g5 og svartur þarf þvingað að taka á sig drottningarlaust miðtafl/endatafl þar sem hvítur er peði yfir.

Hvítur er þó með tvípeð á c-línunni sem er ákveðið mótvægi fyrir peðstapið.

Nepo fór með h-peð sitt á h3 til að koma í veg fyrir peðstap og að hvítur næði frípeði.

Þetta peð er í hálfgerðri rangstöðu en einhvern veginn er hvítur ekki í neinni stöðu til að fá rangstöðu dæmda og vinna peðið! Svartur er sannarlega í vörn í stöðunni en mjög erfitt að sjá hvernig hvítum á að verða nokkuð ágengt þannig að umframpeðið telji.

Þegar Nepo náði að finna netta taktík í 34. leik var ljóst í hvað stefndi

34…Bb3! var flottur leikur hér og Nepo vinnur peðið til baka. 35.Bxb3 Hxc3+ o.s.frv.

Hvítur vann reyndar h-peðið á endanum en 2 gegn 1 á kóngsvæng nægði ekki og Nepo var auk þess fljótur að ná að skpta upp þannig að Ding átti aðeins eitt peð eftir. Jafntefli var svo niðurstaðan með aðeins 2 kónga eftir á borðinu.

Ding taldi sig hafa átt einhverja möguleika í endataflinu en ekki mikla.

Skákin

Einkunnabókin

Næsta skák er á morgun, Nepo hefur hvítt. Svo er frídagur og í kjölfarið tvær skákir og að lokum frídagur fyrir 14. og síðustu skákina.

- Auglýsing -