Taflfélag Snæfellsbæjar hélt laugardaginn 6. mars afar glæsilegt minningarmót um Hrafn Jökulsson og Ottó Árnason í Snæfellsbæ.
Mótið var ákaflega vel sótt en 78 keppendur tóku þátt í aðalmótinu og þar má meðal sjö stórmeistarar. Tefldar voru 4 hraðskákir og svo jafn margar atskákir.
Þrettánfaldi Íslandsmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2454) fór mikinn á mótinu og vann það með 7½ vinningi að átta mögulegum. Leyfði aðeins jafntefli gegn nýjasta stórmeistaranum, Vigni Vatnari Stefánssyni (2417).
Vignir varð annar með 7 vinninga og Helgi Ólafsson þriðji með 6½ vinning.
Veitt voru alls konar aukverðlaun. Verðlaunahafar urðu sem hér segir.
- U2200: Lenka Ptácníková
- U1900: Davíð Kolka
- U1600: Sigurður Páll Guðnýjarson
- Kvenna: Lenka Ptácníková
- Öldunga: Helgi Ólafsson
- Unglinga U16: Ingvar Wu Skarphéðinsson
- Stigalausir: Birgir Þorsteinsson
- Heimamenn: Sigurður Scheving
Lokastöðu mótsins má finna á Chess-Results

Jafnframt fór fram mót fyrir yngri skákmenn á efri hæð félagsheimilisins. Þar var hart barist.
Gunnar Gunnarsson var útefndur fyrsti heiðursfélagi Taflfélag Snæfellsbæjar og er heldur vel að því kominn.

Heimamenn buðu upp á glæsilegar veitingar á meðan mótinu stóð og jafnframt eftir mótið.

Tilkynnt var um samstarf FISK Seafood og Talfélagsins en FISK Seafood ætlar að styðja myndarlega við uppbyggingu æskulýðsstarf í bæjarfélaginu.
Myndir: Alfons Finnsson/Skessuhorn.
















