Hilmir að tafli.

Þriðja umferð Teplice Open fór fram í gær í Tékklandi. Prýðilega gekk í gær og kom 4½ vinningur í hús hjá íslensku ungmennunum sex.

Alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2413) er efstur þeirra með 2½ vinning eftir sigur á FIDE-meistara.

Tvíburarnir Björn Hólm (2121) og Bárður Örn Birkissynir (2179) koma næstir með 2 vinninga. Unnu báðir í gær.

Alexander Oliver Mai (2128) hefur 1½ vinning, Davið Kolka (1959) og Aronr Þór Mai (2077) hafa 1 vinning.

Fjórða umferð fer fram í dag. Þá teflir Hilmir við aserska stórmeistarann Eltaj Safarli (2609).  Tvíburarnir tefla við alþjóðlega meistara.

 

- Auglýsing -