Fjórða umferð Teplice Open fór fram í gær í Tékklandi. Þrír vinningar komu í hús hjá ungmönnunum sex. Það voru tvíburarnir sem voru menn dagsins með góðum úrslitum.
Bárður Örn Birkisson (2179) vann þýska alþjóðlega meistarann Sebastian Plischki (2328) og og bróðir hann Björn Hólm (2121) gerði jafntefli við indverska alþjóðlega meistarann Basak Souhardo (2400)
Alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2413) tapaði fyrir aserska stórmeistaranum Eltaj Safarli (2609).
Davíð Kolka (1959) vann, Aron Þór Mai (2077) gerði jafnefli og Alexander Oliver Mai (2128) tapaði.
Bárður Örn hefur 3 vinninga, Hilmir Freyr og Björn Hólm hafa 2½ vinning, Davíð hefur 2 vinninga og Alexander og Aron hafa 1½ vinning.
Fimmta umferð fer fram í idag.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsending (hefjast flestar kl. 13)
- Auglýsing -

















