Aleksandr Domalchuk-Jonasson tryggði sér áfanga að alþjóðlegum meistaratitli á opnu móti í Prag sem lauk í dag.

Aleksandr gerði jafntefli við pólska alþjóðlega meistarann Jakub Kosakowski (2485). Okkar manni vantaði einmitt titilhafa sem mótherja í lokaumferðinni og Kosakowski var nógu stigahár til að jafnteflið nægði. Andstæðingur Aleksandr í fyrstu umferðinni er hækkaður upp (þar sem munar meira en 350 stigum) og það nægir til að ná áfanganum.

Hilmir Freyr Heimsson vann sína síðustu skák og endaði með 6,5 vinning eins og Aleksandr. Hilmir lagði Sinha Alok (2256) frá Indlandi. Gott mót hjá Hilmi fyrir utan tvo daga. Hann mætir galvaskur í næsta mót!

Bárður Örn Birkisson (2179) endaði næstur Íslendingana með 5,5 vinning. 4,5 vinning fengu þeir Björn Hólm Birkisson (2121), Alexander Oliver Mai (2128) og Davíð Kolka (1959) sem var aflakóngurinn á mótinu, hækkar um 23 stig.Aron Þór Mai (2077) endaði með 4 vinning og Jóhann H. Ragnarsson fékk 3,5 vinning.

Jóhann Hjartarson (2454) heldur áfram að rétta úr kútnum og vann sína skák í dag gegn Thorsten Stricars (2020). Jóhann hefur nú 3,5 vinning af 7 mögulegum eftir þrjár sigurskákir í röð gegn Þjóðverjum. Jóhann fær fjórða Þjóðverjann í röð á morgun.

Hannes Hlífar Stefánsson heldur áfram að gera gott mót á Tenerife. Hannes fékk sinn þriðja kínverska andstæðing í röð, IM Chen Wang (2481) og vann með hvítu!

Að launum fær Hannes Hlífar svart á….jú einmitt enn einn Kínverjann! Að þessu sinni Renjie Huang (2406).

 

 

 

- Auglýsing -