Þeir Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stefánsson hafa lokið leik á sínum mótum í Dortmund og á Tenerife. Vignir Vatnar Stefánsson er með 2 af 2 á České Budějovice í Tékklandi.

Vignir er stigahæsti keppandinn á mótinu og mætti hinum tékkneska Vladimir Vltavsky (2104). Vignir hafði af honum peð snemma í miðtaflinu og nægði það til vinnings þótt Vignir þyrfti einnig að fórna skiptamun seinna til að sigla vinningnum heim.

Bárður Örn Birkisson (2199) hefur einnig 1,5 vinning en hann mætti tékkneskri skákkonu eins svo margir kollegar hans í dag. Lucie Fizerova (1868) átti ekki góðan dag, Báður vélaði snemma af henni peð og hélt áfram nánast óstöðvandi sókn gegn Petroff vörn þeirrar tékknesku sem lagði niður vopn í 21. leik.

Björn Hólm Birkisson (2137) mætti Vaclav Simacek (1799). Sá tékkneski tefldi gambít sem gaf ekkert og Björn nýtti umframpeðið og betri stöðu og vann í aðeins 26 leikjum með svörtu. Alexander Oliver Mai (2137) lagði Jaroslav Linhart (1790) tiltölulega auðveldlega, var komið með unnið tafl í um 20. leik. David Kolka (1938) lagði svo hina tékknesku Tatana Nespora (1601). Stöðubaráttuskák þar sem David hafði betur. Þeir hafa allir einn vinning.

Aron Thor Mai (2037) laut í dúk gegn Lucie Rybackova (1770). Aron gerði taktísk mistök sem sú tékkneska nýtti sér. Aron Thor er ekki enn kominn á blað.

Menn aðeins að rétta úr kútnum í dag eins og við var að búast!

Yfirferð Vignis (myndband) má nálgast hér

Skákir 2. umferðar

Beinar útsendingar

Chess-results

Formaður TR (t.h.) afhendir Hilmi hinn fornfræga farandbikar Boðsmótsins sem var fyrst haldið 1968.

Hilmir Freyr Heimisson teflir í lokuðum GM flokki í Ceske sem ritstjórn tók ekki eftir í fyrstu umferðinni!

Hilmir tapaði í 1. umferðinni gegn stórmeistaranum Guha Mithrahab (2515).

Hilmir leyfði fórn á f7 í 16. leik sem kom vararitstjóra á óvart þar sem Hilmir hafði unnið Héðin Steingrímsson með sömu fórn í nánast sömu stöðu í fyrra!

Útgáfan hjá Hilmi líklega aðeins skárri með hrók á c8 í stað peðs á a6. Þetta reyndist vera undirbúningur en misheppnaðist engu að síður og sá indverski hafði sigur.

Í 2. umferð virtist Hilmir svo vera yfirspilaður af Kínverjanum Yuxin Song (2326)

Erfið byrjun hjá Hilmi en hann hefur þetta bara eins og á síðasta móti, tveir slæmir dagar og fer með himinskautum í rest! Fær líka séns á að hefna ófaranna gegn Deep Sengupta!

Chess-Results

Beinar útsendingar

Landsliðskonan Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1942) hóf í dag taflmennsku á Open International de Porticcio

Hallgerður náði góðum úrslitum með svörtu í 1. umferðinni og gerði jafntefli við Ghislain Maugenest (2228)

Chess-Results

Jóhann Hjartarson að tafli.

Jóhann Hjartarson (2454) lagði Timo Leonard (2221) í lokaumferðinni, hans fimmta sigurskák í röð og náði Jóhann að laga mótið eftir erfiðara byrjun. Jóhann endaði með 5,5 vinning af 9 í 45-88. sæti. Þýsku stórmeistararnir Alexander Donchenko og Rasmus Svane urðu efstir með 7,5 vinning af 9.

Hannes að tafli

Hannes Hlífar Stefánsson átti gott mót á Tenerife og hefði orðið með efstu mönnum hefði lokaumferðin gengið vel. Það gerði hún hinsvegar ekki þar sem fimmti kínverski andstæðingur Hannesar í röð, Tong Xiao (2316) náði að leggja okkar mann að velli.

Hannes endaði með 6 vinninga af 9 mögulegum og átti mjög fína spretti.

Fimm urðu efstir og jafnir með 7 vinning og þar á meðal Íslandsvinurinn Abhijeet Gupta og Xiangzhi Bu sem einnig hefur teflt í nokkur skipti á Íslandi.

 

 

 

 

 

- Auglýsing -