Aleksandr-Domalchuk Jonasson tefldi tvöfalda umferð á Spáni og átti frábæran dag. Adam Omarsson tapaði en bróðir hans Josef Omarsson hafði sigur í Serbíu. Helgi Áss Grétarsson hóf leik á Czech Open með góðum sigri.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2373) teflir þessa dagana á Open Internacional CA MONTEOLIVETE á Spáni. Aleksandr er númer 40 í styrkleikaröð af 227 keppendum.
Fyrir umferðina hafði Aleksandr 3,5 vinning af 5 mögulegum eftir tvær sigurskákir í röð. Okkar maður var búinn að vinna sig upp á „háborðin“ og var í beinni útsendingu í sjöttu umferðinni með svart gegn stórmeistaranum Mahel Boyer (2501) frá Frakklandi.
Úr varð þung stöðubaráttuskák en Aleksandr náði undirtökunum í kringum 30. leik eftir taktísk mistök hjá hvítum. Svarta drottningin læddist bakdyramegin inn í herbúðir hvíts og svartur vann peð, hafði hættulegra frípeð og betri kóng.
Stórmeistarar eru yfirleitt stórmeistarar af því að þeir eru lítið fyrir að bogna undan mótlæti. Sá franski barðist með kjafti og klóm og náði mótspili og vann peðið til baka eftir augljósan tímahraksbarning.
Endataflið var nú í jafnvægi, þangað til sá franski lék skelfilega af sér.

Einn ELDRAUÐUR er akkúrat það sem maður vill sjá! Svartur má taka riddarann og í lykilafbrigðum má svartur setja riddara sinn á c6 til að stoppa a-peðið. Svartur vekur svo upp á h1 með skák og vinnur drottninguna sem vekur upp á a8, ekki ósvipað og í „Searching for Bobby Fischer“
Flottur sigur hjá Sasha. Þetta þýddi auðvitað áframhald á baráttu við titilhafa. Í seinni umferðinni var komið að Kúbverjanum Ernesto Fernandez Guillen (2467), alþjóðlegur meistari. Aleksandr hafði hvitt og Ernesto tefldi einhverskonar „kryppu-kóngsindverja“ þar sem hvítur fékk nokkuð auðveldlega að leika e5 og hanga á öllu rýminu.
Eftir byrjunina var hvítur með mun betri stöðu, allt rýmið en enn á eftir að brjótast í gegn.
Mistökin komu í 29. leik, síðasti leikur var 29…Bxe5? Nú fór riddari hvíts í ferðalag sem svartur mögulega missti af. 30.Rxf7 Bxd3 31.Rxd8 Bxc2 32.Rc6!
Hvítur vann skiptamun og restin var „matter of technique“ og hvítur landaði sigrinum í 74. leik. Glæsilegt hjá Aleksandr!
Eftir þennan frábæra dag er Aleksandr kominn með 5,5 vinning af 7 og kominn upp í 3-6. sæti á mótinu eftir fjórar sigurskákir í röð. Hann teflir á þriðja borði í beinni á morgun og mætir þar með svörtu mennina gegn Milosz Szpar (2428) en Milosz er pólskur alþjóðlegur meistari. Sigrarnir í dag setja Aleksandr einnig í ansi góða stöðu er kemur að áfangasénsum og t.a.m. er líklegt að sigur í skákinni á morgun dugi til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli og að öllum líkindum nægir 1 af 2 í lokaumferðunum.

Þeir bræður Adam Omarsson (1843) og Josef Omarsson (1710) tefldu sína sjöttu umferð á opna mótinu í Serbíu í dag.
Adam mætti Serbanum Nenad Ravic (2210), stigahár andstæðingur og Adam með svart í þokkabót. Adam tefldi sikileyjarvörn og úr varð mjög skemmtileg skák. Adam náði mjög flottu taktísku skoti með 22…Hxb2! Svartur stóð mun betur í framhaldinu og tölvurnar mjög hrifnar af svörtu stöðunni ef hann finnur 27…h5! Adam missti aðeins þráðinn í kjölfarið og varð að lúta í dúk.
Adam hefur 2 vinninga af 6.
Josef mætti Nenad Lopjur (1743) frá Serbíu og hafði sigur. Josef er þá einnig kominn með 2 vinninga.
Josef hafði hvítt gegn Nenad og miðtaflið var í jafnvægi en þá náði Josef að trikka skiptamun af Serbanum. Eftirleikurinn varð auðveldur.
Í annað skiptið í röð fær Adam enn sterkari andstæðing þrátt fyrir tap! Í sjöundu umferðinni mætir Adam FIDE meistaranum Gabriela Antova (2240) frá Búlgaríu og hefur hvítt. Josef hefur svart gegn Serbanum Lazar Davidov (1901).

Þeir bræður eru báðir um 40 elóstig í plús og vonandi halda þeir áfram að hala inn stigum og ná sér í góða reynslu!

Helgi Áss Grétarsson (2475) hóf taflmennsku á Czech Open í Pardubice í dag. Þetta er mót sem Íslendingar hafa sótt nokkuð reglulega í gegnum árin. Helgi er númer 15 í styrkleikaröð af 292 keppendum. Tefld verður er ein skák á dag, 9 umferðir.
Í fyrstu umferðinni mætti Helgi kvenstórmeistaranum og margreyndri landsliðskonu, Olga Sikarova (2143). Helgi hafði hvítt og úr varð mikil og þung stöðubaráttuskák. Helgi hafði ekki úr miklu að moða en taflið fór að snúast þegar Helgi skellti í stórmeistara-manúveringu með riddaranum.
Rd4-c2-e3-c4 var lykillinn og Helgi fór að taka yfir taflið! Mjög fljótlega kom svo afleikur hjá Olgu.
Góð byrjun hjá Helga. Í 2. umferð fær Helgi svart á Úkraínumanninn Artem Berin (2222).














