
Aleksandr-Domalchuk Jonasson vann sinn annan sigur í röð á stóru opnu móti á Spáni. Bræðurnir Adam og Josef Omarssynir töpuðu báðir í Serbíu. Helgi Áss Grétarsson hefur leik á Czech Open á morgun.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2373) teflir þessa dagana á Open Internacional CA MONTEOLIVETE á Spáni. Aleksandr er númer 40 í styrkleikaröð af 227 keppendum.
Í fimmtu umferð fékk hann hvítt á Arena FIDE meistarann (AFM) David Galstyan (2128) frá Spáni. Ekki gerði Spánverjinn þessum titli góð skil í skák dagsins. Svartur hefði getað með góðu móti gefist upp í 13. leik eftir arfaslaka taflmennsku. Svartur þraukaði fram í 16. leik og gafst upp.
Auðveldur dagur á skrifstofunni hjá Aleksandr. Skákin talar sínu máli og best að hafa sem fæst orð um taflmennsku svarts!
3,5 vinningur af 5 hjá Aleksandr sem mætir alþjóðlega meistaranum Mahel Boyer (2501) frá Frakklandi. Á morgun er tvöfaldur dagur og því gríðarlega mikilvægt fyrir framvinduna að eiga góðan dag!

Þeir bræður Adam Omarsson (1843) og Josef Omarsson (1710) tefldu einnig fimmtu umferð á opna mótinu í Serbíu í dag.
Adam mætti Serbanum Ilija Stanojevic (2133) og tapaði. Skömmu eftir byrjunina tapaðist peðið á d5 nokkurn veginn bótalaust. Hvítur þarf að leita á endurbót á byrjuninni, Serbinn virtist vel undirbúinn þar!
Adam hefur því 2 vinninga af 5 mögulegum.
Josef mætti líka Serba, Miroslav Maksimovic (2109) og tapaði sinni skák einnig og hefur 1 vinning af 5.
Í sjöttu umferð fær Adam FIDE meistarann Nenad Ravic (2210) frá Serbíu en Josef mætir Nenad Lopjur (1743), einnig frá Serbíu.

Á morgun, föstudag mun Helgi Áss Grétarsson (2475) hefja taflmennsku á Czech Open í Pardubice. Þetta er mót sem Íslendingar hafa sótt nokkuð reglulega í gegnum árin.

Helgi Áss setti mynd af hótelinu „fræga“ Hotel Labe þar sem fjöldi Íslendinga hefur gist í gegnum árin. Hótelið er komið nokkuð til ára sinna verður þó að segjast! Helgi er #16 í styrkleikaröð af 318 keppendum. Tefld verður ein skák á dag, 9 umferðir.













