Lei Tingjie að tafli. Mynd: David Llada/FIDE

Níundu og tíundu skák heimsmeistaraeinvígis kvenna lauk báðum með jafntefli. Staðan er 5-5 þegar tveimur skákum er ólokið. Það er því ljóst að þær tefla allir skákirnar. Verði jafnt verður teflt til þrautar með skemmri umhugsunartíma. Úrslita keppninin hefst með fjórum atskákum (25+10).

Í níundu skákinni voru teflir 59 leikir þar sem Wenjun hafði hvítt. Nánar má lesa um níunda skákina á Chess.com. 

Í tíundu skák hafði hafði Tingjie hvítt og tefldir voru 47 leikir. Báðum skákunum lauk með steindauðu hróksendatafli. Nánar má lesa um skákina á Chess.com.

Ellefta og næstsíðasta skákin verður tefld á morgun og hefst taflmennska kl. 7. Lokaskákin á laugardaginn og bráðabani ef til hans kemur á sunnudaginn.

- Auglýsing -