Helgi Áss að tafli.

Það gekk ekki vel hjá íslensku keppendunum sem sitja að tafli í Evrópu í dag. Sigurganga Aleksandr Domalchuk-Jonasson var stöðvuð á Spáni, Adam og Josef Omarssynir töpuðu báðir í Serbíu og Helgi Áss gerði jafntelli við stigalægri andstæðing.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2373) teflir þessa dagana á Open Internacional CA MONTEOLIVETE á Spáni. Aleksandr er númer 40 í styrkleikaröð af 227 keppendum.

Fyrir umferðina var Aleksandr kominn upp í 3-6. sæti á mótinu eftir fjórar sigurskákir í röð. Hann tefldi á þriðja borði í beinni og mætti með svörtu mennina gegn Milosz Szpar (2428) en Milosz er pólskur alþjóðlegur meistari. Sasha tefldi móttekið drottningarbragð en sá pólski tefldi af miklum þunga. Hann tryggði sér biskupaparið og setti mikla stöðulega pressu á Aleksandr. Í endataflinu bognaði svo svarta staðan undan þunganum og tap staðreynd.

Aleksandr hefur 5,5 vinning af 8 og fær líklegast áfangaskák í lokaumferðinni þar sem hann þarf sigur.

Þeir bræður Adam Omarsson (1843) og Josef Omarsson (1710) tefldu sjöundu umferð á opna mótinu í Serbíu í dag.

Adam mætti FIDE meistaranum Gabriela Antova (2240) frá Búlgaríu og varð að lúta í dúk. Josef tapaði einnig gegn Serbanum Lazar Davidov (1901).

Bræðurnir hafa báðir 2 vinninga af 7 og fá viðráðanlegri andstæðinga í næstu umferð. Adam mætir Sofiu Barkasheva (1636) frá Eistlandi en Josef fær Anastasiu Grodzanovic (1980).

Helgi Áss Grétarsson (2475) teflir á Czech Open í Pardubice. Helgi er númer 15 í styrkleikaröð af 292 keppendum.

Helgi fékk svart á Úkraínumanninn Artem Berin (2222) í 2. umferð. Helgi tefldi ákveðið „sull-afbrigði“ gegn drottningarpeði Úkraínumannsins. Helgi virtist ná nokkrum góðum taktískum skotum í byrjuninni, sérstaklega á e5 reitnum. Svartur fékk betra tafl en staðan einfaldaðist full mikið og þó að Helgi hafi staðið aðeins betur í endataflinu taldi hann stöðuna líklega orðna full einfalda og sætti sig við jafnteflið.

Helgi hefur 1,5 vinning. Pörun í 3. umferð liggur ekki fyrir.

- Auglýsing -