Ju Wenjun (2564) vann í gær sinn fjórða heimsmeistaratitil kvenna. Hún vann lokaskákina í heimsmeistaraeinvígi sínu við Lei Iingjie (2554) og vann þar með sigur í heimsmeistaraeinvíginu 6½-5½.

Nánar um lokaskákina á Chess.com. 

Ju Wenjun hefur nú haldið heimsmeistaratitlinum síðan 2018 er hún vann Tan Zhongyi þáverandi heimsmeistara í einvígi. Síðan þá hefur lagt Katarynu Lagno og Aleksöndru Goryachkinu og nú Lei Tingjie í heimsmeistaraeinvígunum.

- Auglýsing -