Heimsbikarmótiið í Baku í Azerbaijan hélt áfram í dag með seinni skákinni í 128 manna úrslit í opnum flokki og 64 manna úrslit í kvennaflokki. 50 bestu skákmenn heims og 25 bestu skákkonur sátu hjá í fyrstu umferðinni en hófu leik í þessari útsláttarumferð.

Magnus Carlsen (2835) vann sína skák í gær og hamraði járnið heitt gegn Levan Pantsulaia (2564) frá Georgíu. Mjög flott skák hjá Carslen sem tók við peðsfórn Georgíumannsins í byrjuninni. Fórnin gaf svörtum gott spil en Carlsen skilaði peðinu og fórnaði svo sjálfur peði. Fyrir peðið hafði Carlsen hættuleg færi sem fólust aðallega í því að kóngur svarts náði ekki að hróka.

Magnus tryggði sig áfram í næstu umferð með mögnuðum lokaleik 29.He8!!
World no. 1 @MagnusCarlsen smiles after finding a brilliancy to beat Levan Pantsulaia and reach Round 3 of the #FIDEWorldCup! pic.twitter.com/7o72tCgdlo
— chess24.com (@chess24com) August 3, 2023
Hikaru Nakamura tefldi tilþrifalitla skák og ætlar greinilega að freista gæfunnar í bráðabana. Tilþrifalítil skák en Hikaru skýrir hann engu að síður á YouTube rásinni sinni
Fabiano Caruana (2782) átti líka auðvelda viðureign og vann 2-0. Nepo (2779) fór einnig nokkuð létt áfram en þeir Anish Giri (2775) og Wesley So (2769) þurfa að fara í bráðabana í sínum einvígjum. Wesley slapp svo sannarlega með skrekkinn gegn Emre Can sem líklega stóð til vinnings.
Wesley So is pulling off a great escape! #FIDEWorldCup pic.twitter.com/0Q9HdHQioA
— chess24.com (@chess24com) August 3, 2023
Heimamaðurinn Radjabov (2747) fór áfram með sigri á hinum trausta Ungverja Viktor Erdös (2571). Í erfiðri stöðu reyndist Ha6-a1 vera ansi slakur leikur.
Radjabov svaraði auðvitað með 28.Hxd6! og svarta staðan hrynur.
Indverjinn Gukesh (2744) kláraði sitt og er kominn örugglega áfram. Hann er nú orðinn stigahærri en Anand sem eru stórfréttir. Hér er þó um að ræða live/lifandi stig og verður að bíða og sjá hvort hann komist yfir Anand á birtum lista 1. september næstkomandi.
🔥D Gukesh becomes the New India #1!@DGukesh #FIDEWorldCup #gukesh pic.twitter.com/BzYcFIU60E
— ChessBase India (@ChessbaseIndia) August 3, 2023
Fyrstu stóru óvæntu úrslitin voru tap heimamannsins Shakh Mamedyarov (2742) gegn Jingyao Tin (2573) frá Singapore! Shakh missti algjörlega tók á stöðunni í miðtaflinu en komst aftur inn í skákina, bara til að nánast leika sig í mát í lokin. Sárt tap á heimavelli og sérstaklega að tapa með hvítu. Mamedyarov er í nokkru uppáhaldi hjá mörgum hér á Íslandi og eftirsjá eftir honum.

Ekki verður minni eftirsjá eftir Úzbekanum Abdusattorov en hann vann sér einmitt inn marga aðdáendur með vaskri framgöngu á Íslandi á heimsmeistaramótinu í slembiskák.
Ekki ósvipað og Mamedyarov þá fórnaði Abdusattorov peði með hvítu en missti tökin seint í miðtaflinu.
Another 2700+ player to fall in the second round of the #FIDEWorldCup is Nodirbek Abdusattorov. Today he lost to Turkish #3 Vahap Sanal (photo by Maria Emelianova). pic.twitter.com/of8yvfSigi
— International Chess Federation (@FIDE_chess) August 3, 2023
Alls fóru hvorki meira né minna en 30 einvígi í bráðabana í opnum flokki sem fram fer á morgun.

Eva Repkova (2312)náði nokkuð óvænt að stýra einvíginu við Ju Wenjun (2564)í bráðabana í kvennaflokki.
Sú næststigahæsta, Goryachkina (2567) fór á meðan auðveldlega áfram.
Þær Kateryna Lagno (2562) og Alexandra Kosteniuk (2532) eru nokkuð óvænt lentar í bráðabana í sínum einvígjum, Kosteniuk eftir tap í dag gegn T Yan (2277) frá Víetnam.
Lítið var um mjög óvænt úrslit en þó mætti telja til Íslandsvinkonan Sara Khademalsharieh (2488) tapaði gegn Warda Aulio (2355). Sara er nýbyrjuð að tefla fyrir Spánverja.
Níu bráðabanar framundan í kvennaflokki. Það verður gaman að fylgjast með á morgun!
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar Chess.com | kvenna (skákir hefjast 11:00)
- Beinar útsendingar lichess | Kvenna














