Stefán, Gyða unnusta hans, og Helgi Áss í Porto (Mynd: HÁG af FB)

Þrír Íslendingar tefla á Leca Chess Open 2023 í Porto, Portúgal. Þetta eru: GM Vignir Vatnar Stefánsson (2487), GM Helgi Áss Grétarsson (2475) og Stefán Bergsson (2169). Vignir er númer 6 í styrkleikaröð, Helgi Áss númer 7 og Stefán Bergsson númer 38. Alls er 171 skákmaður skráður til leiks á mótið. Í dag fór fram tvöföld umferð, sú fimmta og sú sjötta. Mótið er keyrt áfram á sama tempói og Reykjavíkurskákmótið, 9 umferðir á sjö dögum.

Þeir Vignir og Helgi Áss höfðu 3 vinninga af 4 en Stefán Bergsson hafði 2,5 vinning fyrir daginn.

Vignir fékk svart í fyrri skákinni gegn FIDE meistaranum Fernando Ribeiro (2119). Vignir tefldi Sikileyarvörnina og fékk fínt miðtafl. Sá portúgalski tefldi djarft og bombaði riddara sínum á þrælvaldaðan d5 reit og vildi læti. Vignir fann leið til að halda liðsyfirburðum og náði loks endatafli með tvo hróka gegn drottningu. Vignir hafði það á endanum.

Spurning hvort að Vignir hafi fengið innblástur úr flottri úrvinnslu Sævars Bjarnasonar gegn Nick de Firmian sem við birtum hér á síðunni fyrir nokkrum dögum þar sem Sævar var með algjöra kennslustund i styrkleika tveggja hróka gegn drottningu.

Í seinni skákinni hafði Vignir hvítt gegn spænska stórmeistaranum Manuel Perez Candelario (2573). Sá spænski tefldi kóngsindverja og Vignir svaraði með Fianchetto-afbrigðinu, semsagt að skáksetja einnig sinn biskup. Vignir fékk ekki nóg eftir byrjunina og fékk á sig smá óþægilega pressu.

Vignir skynjaði hættuna og fór í varnargírinn. Úr varð hróksendatafl þar sem Spánverjinn var peði yfir en Vignir varðist af miklu öryggi.

Helgi Áss fór svipaða leið í dag, þ.e. vann fyrri skákina og gerði svo jafntefli við stórmeistara í þeirri seinni.

Í fyrri skákinni fékk Helgi hvítt á alþjóðlega meistarann Rafael Rodriguez Lopez (2182). Að vanda varð úr drottningarpeðsbyrjun. Helgi kom úr miðtaflinu með betra tafl og fína pressu þegar sá spænski missti heilan kall í hafið. Mögulega taldi sá spænski sig vera að ná hættulegu spili en Helgi þurfti aðeins nokkra leiki til að kæfa alla von um það.

Í seinni skákinni fékk Helgi svart á reyndan franskan stórmeistara, Eric Prie (2373). Sá franski ákvað að vera ekkert að rugga bátnum í þetta skiptið með hvítu mönnunum.

Þeir stórmeistarar hafa því 4,5 vinning að 6 umferðum loknum.

Stefán Bergsson var ekkert á því að verða útundan og hann jafnaði þennan vinningafjölda og hefur einnig 4,5 vinning eftir að hafa unnið báðar skákir sínar í dag.

Í fyrri skákinni fékk Stefán indverskan anstæðing, Vikram Anishka (1675). Indverjarnir eru að jafnaði mjög erfiðir þrátt fyrir að vera stigalágir en Stefán steig fast til jarðar og tefldi trausta skák. Í lokin kom svo fréttablaðshæf taktík hjá Reykjavíkurmeistaranum fyrrverandi og útlit fyrir að Stefán sé kominn í gírinn, hans þriðja sigurskák í röð!

Fjórða sigurskákin í röð kom svo gegn Francisco Jose Veiga Fernandez (2397). Stefán tefldi Sveshnikov og var aftur í gríðarskörpum taktísktum gír þegar á reyndi. Gaman að sjá Stefán í þessum ham!

Í sjöundu umferðini fá þeir allir andstæðinga á svipuðu reyki. Vignir fær svart á Miguel Borges Sismeiro (2309), Helgi Áss fær hvítt á Indverjann Sai Agni Jeevitesh (2289) og Stefán fær hvítt á stórmeistarann Eric Prie (2353).

Einfaldar umferðir verða svo það sem eftir er móts.

- Auglýsing -