Mynd: Ellen Frederica Nielsen

Í gær fór fram atskákmót í Tékklandi. Meðal keppenda voru mæðginin Lenka Ptacnikova (2092) og Josef Omarsson (1645). Tefldar voru atskákir með 15 mínútum til umhugsunar.

56 keppendur voru skráðir til leiks. Lenka var númer 6 í styrkleikaröð en Josef númer 21. Fimm titilhafar tóku þátt auk Lenku. Skemmst er frá því að segja að þau áttu bæði prýðisgott mót.

Josef fékk 4 vinninga af 7 og hækkaði um 31 atskákstig fyrir árangurinn.

Lenka var í banastuði og fékk 6,5 vinning af 7 mögulegum. Leyfði aðeins jafntefli í lokaumferðinni sem tryggði sigurinn og lagði FM Valenta og IM Pastircak á leiðiinni auk þess sem Lenka og Josef mættust á mótinu.

- Auglýsing -