MVL þungt hugsi. Mynd: Maria Emelianova/Chess.com

64 manna úrslit á Heimsbikarmótinu í skák héldu áfram í dag og á sama tíma 32 manna úrslit í kvennaflokki. Seinni kappskákin fór fram í dag og svo bráðabanar þessarar umferðar á morgun, mánudag. Þriðjudaginn 8. ágúst verður svo annar af tveimur frídögum á Heimsbikarmótinu í Baku.

MVL á heimleið

Fransmaðurinn geðþekki Maxime Vachier-Lagrave (2739) er á heimleið. Það er stóra sagan úr þessari umferð. MVL hafði hvítt gegn Ólympíumeistaranum Javokhir Sindarov (2659) frá Úzbekistan.

Þeir tefldu gríðarlega hvasst og flókið afbrigði í spænska leiknum. Hvítur endar skiptamun undir en hefur þrjú peð upp í og því liði yfir. Sindarov var með 1:28 eftir 18 leiki en MVL 1:16 og þeir þekktu því afbrigðið greinilega vel, MVL byrjaði aðeins fyrr að hugsa þó

26. leikur MVL 26.Rxd4? reyndist örlagavaldur.

Svartur á hér 26…Hxa6! sem Úzbekinn sá. Hann tefldi framhaldið mjög vel, MVL reyndi að þrást við en varð að gefast upp, búinn að „fórna yfir sig“

Sannarlega óvænt en Úzbekar urðu ekki Ólympíumeistarar á einhverjum grís, þessir srákar hafa gríðarlega keppnishörku.

Magnus áfram

Magnus Carlsen (2835) þurfti að senda samlanda sinn,  Aryan Tari (2641) heim af Heimsbikarmótinu. Magnus vann í gær með hvítu og þurfti því aðeins jafntefli til að fara áfram, sem hann náði.

Carlsen tefldi Caro-Kann vörnina og var ekkert að rugga bátnum. Stillti kóng sínum upp á g6 reitnum og minnti þar á annan snilling, Capablanca sem gerði slíkt hið sama í frægri skák við Nimzovitsch.

Carlsen missti mögulega af smá færum í lokin en var greinilega bara sáttur við jafnteflið og að fara áfram án þess að eyða of mikilli orku.

Nakamura einnig áfram

Næststigahæsti maður mótsins Hikaru Nakamura (2787) hafði hvítt í seinni skákinni gegn Ungverjanum Benjamin Gledura (2645). Nakamura tefldi 1.e4 og upp kom spænskur leikur. Vendipunkturinn kom eftir slakan leik Gledura riddari til h5.

Eftir 30.Rg4! vinnur hvítur peð og úrvinnsla Nakamura var óaðfinnanleg

Nakamura er búinn að skýra skákina á YouTube

Ljóst er hverjum Carlsen og Nakamura mæta. Carlsen fær Keymer en Nakamura mætir Pragganandhaa!

Caruana slapp með skrekkinn og missti aftur af vinningi!

Fabiano Caruana (2782) þarf að fara í bráðabana gegn Mustafa Yilmaz (2639). Caruana missti af ótrúlega einföldum vinningi í gær og í dag voru það glutruð tækifæri á báða bóga sem var sagan.

Caruana fékk fínt tafl úr byrjuninni en hleypti hvítum í hættulega sókn.

Hér gat Yilmaz leikið 33.Hxh6! og Fabi er í stórkostlegum vandræðum. Þess í stað kom 33.Hdg2? og það er hvítur sem er í vandræðum eftir rétt framhald Fabi 33…Dxf4.

Fabi tók skömmu síðar þráskák hróki yfir

Hann lék hér 38…Kg8? sem er endurtekning. Hér hefði 38…Dxf5! líklega dugað til vinnings. 39.exf5 He8 og næst drepur svartur á f3 með liðsvinningum.

Ekki sannfærandi hjá Caruana. Skak.is spáir því að hann fari áfram í bráðabananum en taflmennskan boðar ekki gott upp á framhaldið.

Eftirspurnarsigrar

Nokkrir skákmenn náðu að koma til baka og „win on demand“ eða náðu sér í eftirspurnarsigur eins og við höfum kallað það í smá gríni.

Bardiya Daneshvar (2577) ungi Íraninn sem sló út Grischuk í síðustu umferð náði að vinna seinni skákinni gegn Salem A R Saleh (2661) frá Sameinuðu furstadæmunum.

Jorden van Foreest (2697) náði að kvitta fyrir tapið gegn Peter Svidler (2688) í gær.

Moldóvinn Ivan Schitco (2507) varð að lúta í dúk gegn Radoslaw Wojtaszek (2676) sem náði eftirspurnarsigri með svörtu.

Þessar viðureignir fara í bráðabana.

 

Ekkert að skilja á milli

Fjölmargar viðureignir fara í bráðabana eftir að báðar kappskákirnar enduðu með jafntefl. Þær eru:

Heimamaðurinn Abasov (2632) og Anish Giri (2768) þurfa að fara í bráðabana.

Ivan Cheparinov (2657) gegn Jan-Krzysztof Duda (2732).

David Howell (2677) og Wang Hao (2709)

Nikita Vitiugov (2720) og Ferenc Berkes (2615)

Rauf Mamedov (2633) og Ian Nepomniachtchi (2779)

Etienne Bacrot (2662) og Yu Yangyi (2721)

Íslandsvinirnir Amin Bassem (2694) gegn Nils Grandelius (2684)

Anton Korobov (2667) og „Abdusattorov-baninn“ Vahap Sanal (2591)

Bráðabanavélin Teimour Radjabov (2747) og Jaime Santos Latasa (2656)

Jules Moussard (2661) og Wesley So (2769)

Ofurungstirnið „fyrrverandi“ Wei Yi (2726) og kempan Vasyl Ivanchuk (2667)

Andrey Esipenko (2683) og Paco Vallejo (2706)

Matthias Bluebaum (2677) og Vidit (2723)

Bogdan-Daniel Deac (2698) og Nihal Sarin (2688)

Le Quang Liem (2728) og Ruslan Ponomariov (2664)

Auk Caruana gegn Yilmaz sem við minntumst á áðan.

 

Komnir áfram

Auk Carlsen, Nakamura og Sindarov eru eftirtaldir komnir í næstu umferð:

Ray Robson (2699) sem lagði Gadimbayli

Pragganandhaa (2707) sem lagði Navara

Parham Magsoodloo (2702) sem lagði Alexander Donchenko (2688)

Rasmus Svane (2631) sem lagði Tin Jingyao

Vincent Keymer (2701) sem lagði Amin Tabatabaei (2696)

Gukesh (2744) sem lagði landa sinn Naranyan

Arjun Erigaisi (2704) sem lagði Fedoseev

Daniele Vocaturo (2609) sem sló óvænt Daniil Dubov (2716)

Leinier Dominguez (2739) sem lagði Guseinov

Alexei Sarana (2685) sem lagði Shevchenko.

 

Kvennaflokkur

Ju Wenjun (2564) heimsmeistari kvenna hefur varið allt annað en sannfærandi á þessu móti. Í 2. umferð gerði hún tvö jafntefli við Evu Repkovu og fór áfram í bráðabana. Í gær gerði hún jafntefli gegn heimakonunni Ulviyya Fatalyeva (2401) og í dag var hún með koltapað tafl, tveimur peðum undir gegn Fatalyevu. Staðan eftir 65 leiki:

Svartur er góðum tveimur peðum yfir og allt leikur í lyndi. Heimsmeistari kvenna á leið út úr Heimsbikarmótinu…eða hvað? Eftir 80 leiki hafði Wenjun náði einu peði til baka en svartur samt með örlítið betra en í engri taphættu.

Svartur gat þráleikið en tapaði þess í stað c-peðinu í 97. leik

Enn er staðan jöfn, 0.0 segja „apparötin“. Í 106. leik ákveður svartur að gefa riddarann fyrir tvö peð og staðan því svona eftir 107 leiki

Enn er staðan fræðilegt jafntefli en flæði skákarinnar er allt hvítum í vil og væntanlega farið að reyna verulega á taugarnar hér hjá heimkonunni þó jafnteflið eigi enn að vera auðvelt. Wenjun vann bæði peðin og fór að reyna að kreysta út vinning með hrók og riddara gegn hrók…sem á að vera ansi auðvelt að halda. Hið ótrúlega gerðist þó í 131. leik!

Wenjun náði að mynda mátnet í lokin og vægast sagt grátlegt tap. Heimsmeistarinn sem var á leiðinni heim fer áfram en Fatalyeva á ekki eftir að sofa vel í nótt!

Fullt hús hjá þeirri hollensku

Hin hollenska Eline Roebers (2419) er í banastuði og hefur unnið allar kappskákir sínar. Ein keppenda í kvennaflokki.

Roebers hefur verið undir handleiðslu Íslandsvinarins og Fjölnismannsins Robert Ris.

Komnar áfram

Auk Roebers og Wenjun eru eftirtaldar komnar áfram: Elisabeth Paehtz, Nurgyul Salimova, Nino Batsiashvili, Anna Muzychuk, Goryachkina (2557), Maria Muzychuk (2511), Polina Shuvalova, Koneru Humpy og Bella Khotenashvili

Muzychuk systur mætast í næstu umferð!

Á morgun eru það bráðabanar og áframhaldandi drama í 64 manna úrslitum í opnum flokki og 32 manna úrslitum i kvennaflokki.

- Auglýsing -