Bráðabanar í 64 manna úrslit á Heimsbikarmótinu í skák fóru fram í dag og á sama tíma í 32 manna úrslitum í kvennaflokki. Á morgun, þriðjudag er svo annar af tveimur frídögum á Heimsbikarmótinu í Baku.

Lítum á hvað gerðist í bráðabönum dagsins á meðan Magnus slappaði af…

Anish Giri (2768) – Nijat Abasov (2632)

Anish náði að opna bráðabanann með því að vinna með hvítu. Tefldur var enskur leikur og Anish lék skemmtilegum leik í byrjuninni. 14.b4!?

Abasov tók ekki en eftir 14…cxb4 15.Hxc6 Dxc6 16.Rxe5 er kominn ótrúleg staða

Svartur tapar drottningunni þvingað! Hótunin er Rxf6+ og t.d. 16…Db5 þá kemur 17.Rd6+ og svo skák á c6!

Giri náði ekki að finna leið til að vinna úr stöðunni og svartur komst í endatafl.

Bobby Fischer hefði örugglega verið sáttur við að komast í þetta endatafl enda þekktur fyrir að elska „kóngsbiskupinn“. Giri náði að svíða þetta, kom kóngnum á b5 og svartur fór líklegast í ranga vörn og leyfði frípeð á a-línunni sem er versti óvinur riddara.

Nú þurfti heimamaðurinn að tefla af krafti og hann gerði það í næstu skák.

15.h4!? týpískur nýtísku leikur í anda Alphazero. 15…Bd7 16.g4 hvítur er „all-in“!

Giri náði að verjast og var kominn yfir það versta þegar hann gaf allt frá sér.

39…Kf8? var arfaslakur og eftir 40.Rd6 er svartur í mátneti. Giri reyndi að valda 40…Hf4 en 41.Hg4! vinnur lið fyrir hvítt 41…Hxf3 42.Kg2 og Giri gaf.

Við tóku skákir með 10+10 tímamörkum en þær voru frekar þurrar og enduðu báðar með jafntefli. Giri-Abasov voru fyrst til að lenda í einvígi með 5+3 tímamörkum. Þar var jafntefli í fyrri skákinni en úrslitin réðust í þeirri seinni.

Þar missti Giri tökin, Abasov var kominn með mun betra tafl þegar Anish Giri féll á tíma. Sannarlega óvænt!

Úrslit: Nijat Abasov áfram 4,5-3,5


Fabiano Caruana
(2782) – Mustafa Yilmaz (2639).

Caruana náði að vinna strax í fyrstu skákinni með svörtu.

29…Hxd3!! sleggja! 30.Hxd3 h3 31.f3 hxg2 32.Kf2 gxf3 og svartur stendur til vinnings.

Caruana vann seinni skákina einnig og var aldrei í vandræðum.

Úrslit: Caruana vinnur 3-1

 

Salem A R Saleh (2661) – Bardiya Daneshvar (2577)

Salem hafði betur á reynslunni gegn hinum 17 ára Bardiya Daneshvar frá Íran.

Úrslit: 2,5-1,5 fyrir Salem A R Saleh

Jorden van Foreest (2697) Peter Svidler (2688)

Reynsluboltinn og fyrrverandi Heimsbikarmeistarinn Peter Svidler sýndi að hann er ekki dauður úr öllum æðum. Hann náði að vinna fyrri skákina með svörtu. Í örlítið óræðri byrjun tefldi Svidler upp á biskupaparið og hvítreitabiskup hans varð algjört stórveldi í skákinni.

Svidler hélt svo með hvítu og er kominn áfram.

Úrslit: 2,5-1,5 Peter Svidler í vil.

Radoslaw Wojtaszek (2676) – Ivan Schitco (2507)

Wojtaszek  náði sér í eftirspurnarsigur í kappskákarhlutanum og nýtti meðbyrinn gegn Moldóvanum Ivan Schitco og vann báðar atskákirnar. Í fyrri atskákinni með svörtu var Wojtaszek í hálfgerði beyglu en náði að verjast og loks snúa taflinu sér í vil. Eftirleikurinn var auðveldur eftir það.

Úrslit: 3-1 fyrir Radoslaw Wojtaszek

Ivan Cheparinov (2657) – Jan-Krzysztof Duda (2732).

Jafntefli í fyrstu bráðabanaskákinni, Cheparinov varð ekkert ágengt með hvítu og þurrt jafntefli varð niðurstaðan. Duda náði ekki að snúa einvíginu almennilega fyrr en í 57. leik með hvítt gegn Berlínarmúrnum í seinni skákinni. Cheparinov lék þá af sér og ekki mikið á milli þarna. Ríkjandi meistari fer áfram.

Úrslit: 2,5-1,5 fyrir Jan-Krzysztof Duda

David Howell (2677) – Wang Hao (2709).

Wang Hao hafði hvítt í fyrri bráðabanaskákinni en hafði úr litlu að moða gegn Berlínarvörninni. Kínverjinn hafði þó „þyrnispeð“ (e. thorn pawn) á a6 reitnum. Þyrnispeð er nýyrði fyrir kantpeð sem eru komin langt inn í herbúðir andstæðingsins. Wang Hao bauð upp á kaup. Eftir 43.De5+

Howell gerði mistök og tók á e5. Hann varð að leika 43…Df6. 43…Dxe5? 44.dxe5 Rf7 45.f4. Hvítur nær f5 peðinu og hefur tvö samstæð frípeð.

Wang Hao hélt svo nokkuð auðveldlega með svörtu og er kominn áfram

Úrslit: 2,5-1,5 fyrir Wang Hao

Nikita Vitiugov (2720) og Ferenc Berkes (2615).

Berkes náði í sigur með svörtu í fyrri 25+10 skákinni. Berkes beitti franskri vörn sem er athyglisvert í ljósi þess að Vitiugov er mikill frakkaskákmaður og hefur skrifað bók um Frakkann.

44.Rf4?? reyndist slakur. Ungverjinn fann 44…Hxd4! 45.Hxd4 Bxd4 46.Hxd4 Hxb1 með tiltölulega auðunnu endatafli.

Berkes samdi svo í 17. leik í seinni skákinni með líklegast hartnær unnið tafl.

Úrslit: 2,5-1,5 Ferenc Berkes í vil

Rauf Mamedov (2633) og Ian Nepomniachtchi (2779).

Azerinn Mamedov hafði hvítt í fyrri skákinni. Hann var of gráðugur í 33. leik og lék hér 33.Hxg5? þegar He1 var nauðsynlegur.

33…Rc3+ 34.Kf2 Hf1+ 35.Kg3 Re2+ og kall í hafið!

Nepo tók svo auðvelt jafntefli í seinni með hvítu.

Úrslit: 2,5-1,5 fyrir Nepo

Etienne Bacrot (2662) og Yu Yangyi (2721) gerðu tíðindalítið jafntefli í fyrri bráðabanaskákinni. Í þeirri seinni hafði Fransmaðurinn Bacrot svart og tefldi Frakkann. Hann var með korter í tapað hér:

Þrem leikjum síðar kom 26.Bxf6??

Eldrauður afleikur og Frakkinn fann 26…Hxf6 27.Hxf6 De2! og hvítur tapar liði.

Úrslit: Frakkinn Etienne Bacrot áfram 2,5-1,5

Amin Bassem (2694) – Nils Grandelius (2684).

Nilli Grand fékk endatafl með parinu í fyrri skákinni

Svíinn náði að sýna kraft parsins og náði að svíða þrátt fyrir mikið af mistökum á báða bóg eftir að Grandelius valdi líklega ranglega að fara í mislinga endatafl.

Amin Bassem fékk svo parið í seinni skákinni og aðeins betra endatafl í kjölfarið peði yfir. Grandelius náði hinsvegar að halda jafnteflinu og er kominn áfram.

Úrslit: 2,5-1,5 fyrir Nils Grandelius

Anton Korobov (2667) – Vahap Sanal (2591)

Korobov tapaði skiptamun í Frakkanum í fyrri skákinni og fékk svo ekki nóg til að valda Tyrkjanum vandræðum í þeirri seinni. Tyrkinn tók smátt og smátt yfir og vann seinni skákina einnig.

Úrslit: 3-1 fyrir Vahap Sanal

Teimour Radjabov (2747) – Jaime Santos Latasa (2656).

Radjabov tapaði fyrri bráðabanaskákinni með hvítu mjög óvænt.

Hér þarf Radjabov að „bomba á bremsuna“ og hugsa um kónginn sinn. 33.Df3 og jafnteflið er ekki víðsfjarri. Þessi í stað kom 33.Dc2+? g6 og 34.Hf8? Radjabov gafst upp án þess að bíða eftir 34…Hc4 og skákinni á c1. Ef til vill missti Azerinn af því að 35.Hxf7 strandar á því að 35…Dxf7 valdar hrókinn á c4.

Vonbrigði fyrir Radjabov og hann náði ekki í eftirspurnarsigur með svörtu mönnunum og því er stigahæsti skákmaður heimamanna úr leik og almennt séð eru Azerarnir ekki að standa sig nógu vel, vonbrigði fyrir heimamenn.

Úrslit: 2,5-1,5 fyrir Jaime Santos Latasa

Jules Moussard (2661) og Wesley So (2769)

Jafntefli varð í fyrri skákinni en Moussard fékk dauðafæri í þeirri seinni. Rangur maður en réttur reitur!

Wesley slapp því með skrekkinn í enn eitt skiptið á þessu móti og nýtti meðbyrinn til að vinna fína pósaskák í Spánverjanum í fyrri 10+10 skákinni.

Wesley var svo solid með hvítu og kominn áfram.

Úrslit: Wesley So vinnur 3,5-2,5

Wei Yi (2726) – Vasyl Ivanchuk (2667)

Jafntefli varð í fyrri bráðabananum en sá gamli sýndi gríðarlega vandaða taflmennsku í miðtaflinu og endataflinu.

Vishy var ánægður með Chucky

Úrslit: 2,5-1,5 fyrir Vasyl Ivanchuk!

Andrey Esipenko (2683) – Paco Vallejo (2706)

Hér fór Esipenko nokkuð auðveldlega áfram. Spánverjinn lék slökum leik með hvítu í fyrri bráðabanaskákinni 12.Dd3?

12…Rfxd4!! 13.Rxd4 Re5 og svartur stendur betur….Vallejo fór hinsvegar úr öskunni í eldinn og lék 14.Bxf7?? eftir 14…Dxf7 er riddaraskák á d3 óverjandi. Svartur vann í aðeins 22 leikjum.

Esipenko tefldi svo seinni skákina af öryggi og endaði svo á að pakka Spánverjanum saman með kóngssókn aftur.

Úrslit: 3-1 Andrey Esipenko í vil.

Matthias Bluebaum (2677) – Vidit Santosh Gujrahti (2723)

Vidit gerði sig sekan um skelfileg mistök í fyrri skákinni. Eftir langa skák þar sem í raun ekkert var í gangi, 0.00 í mat meirihluta skákar kom einn eldrauður.

47…Hxf5?? hér nægði t.d. 47…Ha3 en eftir 48.a7 Ha5 49.Hh8! getur svartur gefið. Um þetta er bara eitt að segja

Every Russian schoolboy knows

Vidit reif sig í gang í seinni 25+10 skákinni. Algjör pökkun!

Þeir þurftu því að fara í 10+10 skákir sem enduðu báðar með jafntefli.

5+3 einvígið var sveiflukennt, Vidit byrjaði betur, vann og virtist ætla að taka seinni skákina líka. Þess í stað klikkaði úrvinnslan og Bluebaum sneri taflinu við…mjög flókin skák

Því þurfti 3+2 skákir. Þar er aðeins tefld ein skák, skipt um liti þar til einhver vinnur skák. Vidit fékk hvítt og vélaði niður stakt peð Þjóðverjans af stakri snilld, fékk svo endatafl með kóngsbiskup gegn riddara, „Fischer-style“. Vinningurinn var eiginlega í höfn en þá…

62.Kh6?? (Kf6 eða Kf4 vinna) 62…Hf5! 63.g7 Hxf3! og skákar af drottninguna. 64.Hc8+ og nú var komið að Bluebaum að velja vitlausan reit fyrir kónginn.

64…Kd2?? hér var …Kb2 jafntefli og hvítur getur valið um Hc5-g5 eða að fá sér drottningu, bæði vinnur.

Vidit áfram en tæpt stóð það. Endatöfl eru erfið, eða er kannski málið að þessi kynslóð kann byrjanir svo vel að endatöflin sitja á hakanum??

Úrslit: Vidit kemst áfram 5-4

Bogdan-Daniel Deac (2698) – Nihal Sarin (2688)

Nihal Sarin náði að véla sigur með svörtu í fyrri skákinni í endatafli með mislitum biskupum. Sarin átti þar af leiðandi auðvelt líf með hvítu í þeirri seinni. Hann hefði vafalítið getað teflt til sigurs peði yfir en jafnteflið nægði þannig að Indverjinn er kominn áfram.

Úrslit: 2,5-1,5 Indverjanum Nihal Sarin í vil.

Le Quang Liem (2728) – Ruslan Ponomariov (2664)

Báðar 25+10 skákirnar enduðu með jafntefli. Ponomariov var fyrri til að láta til sín taka í 10+10 hlutanum og vann með svörtu.

Eftir 45…g6 er ljóst að hvíta g5-peðið er strandaglópur. Ponomariov náði að „manúvera“ riddarana á h7 reitinn og f7 reitinn og vinna peðið. Eftirleikurinn auðveldur eftir það.

Ponomariov fékk þá hvítt en fór samt í einhverja ævintýramennsku.

Ponomariov náði þó tökum á stöðunni og í endataflinu náði hann að stilla upp í virki (e. fortress) og er kominn áfram.

Úrslit: 3,5-2,5 Ponomariov í vil

Kvennaflokkur

GM Alexandra Kosteniuk (2532) – IM Teodora Injac (2415)

Gríðarlega óvænt úrslit urðu þegar ríkjandi meistari, Alexndra Kosteniuk datt út í bráðabana.

Kosteniuk nagar sig væntanlega í handarbökin eftir mistök í fyrri skákinni

41…Hxa8?? var skelfilegt að sjá, 41…Dd1+ og svartur á gangandi þráskák.

Sú serbneska hélt svo vel á spöðunum með svörtu og náði óvæntum sigri.

Úrslit: 3-1 Injac í vil

 

WGM Jiner Zhu (2498) – IM Yulia Osmak (2444)

Sú kínverska vann báðar atskákirnar

Úrslit: 3-1 Jiner Zhu

 

GM Harika Dronavali (2500) – IM Lela Javakhishvili (2441)

Jafntefli alla leið í 10+10 skákirnar. Þar náði Harika að vinna fyrri skákina með hvítu en sú georgíska var hörð og þvingaði einvígið í 5+3 hlutann. Enn var jafnt og því þurfti að fara í 3+2 skákir til að fá hrein úrslit. Þetta reyndist síðasta viðureign dagsins í báðum flokkum. Harika reyndist sterkari á taugum í lokin og fer áfram.

Úrslit: 5-4 fyrir Hariku

 

IM Narva Mai (2389) – GM Zhongyi Tan (2523)

Sú eistneska náði óvænt í eftirspurnarsigur í seinni atskákinni en sú kínverska kláraði dæmið í 10+10 skákunum.

Úrslit: 4-2 fyrir þá kínversku

 

Á morgun er frídagur en á miðvikudag er komið að 32 manna úrslitum í opnum flokki og 16 manna úrslitum í kvennaflokki. Viðureignirnar verða alltaf jafnari og meira spennandi og óhjákvæmilegt að fleiri frábærir skákmenn þurfi að taka pokann sinn í þessari viku.

- Auglýsing -