Í dag hófust úrslit á Heimsbikarmótinu í Baku. Eftir taflmennsku í hartnær mánuð eru það Magnus Carlsen og Rameshbabu Pragganandhaa sem tefla til úrslit. Á sama tíma tefla Fabiano Caruana og Nijat Abasov um þriðja sætið.

Rameshbabu Pragganandhaa (2707) – Magnus Carlsen (2835)

Pragga kom Magnus á óvart með enska leiknum en fékk þó lítið úr byrjuninni og Magnus var ekki í miklum vandræðum að jafna taflið. Eftir mikil uppskipti var dautt endatafl á borðinu þar sem báðir hefðu þrjú peð á sama væng. Jafntefli var samið.

Viðtöl:

Nijat Abasov (2646) – Fabiano Caruana (2782)

Heimamaðurinn Abasov heldur áfram að koma á óvart. Í dag vann hann á snaggaralegan hátt gegn Fabiano Caruana. Abasov tefldi Catalan og varð snemma ógnandi á g-línunni. Sóknin bar ávöxt og Caruana var einfaldlega varnarlaus í lokastöðunni eftir 26.f5!

Hótunin að leika f6 er einfaldlega of sterk og riddari til f6 er líka sterk hótun. Til dæmis eftir 26…Rd5 27.f6 gxf6 þá kemur 28.Dxh6!! og svartur er mát í næsta leik! Fabiano líkegast ekki búinn að jafna sig eftir erfiðan bráðabana í gær!

Á morgun fer fram seinni skákin í úrslitaeinvíginu á Heimsbikarmótinu og hefur Magnus Carlsen hvítt gegn Rameshbabu Pragganandhaa.

Útsending dagsins:

- Auglýsing -