Hilmir Freyr Heimisson tekur þátt í lokuðum flokki á Copenhagen Chess Challenge. Um er að ræða lokaðan IM flokk með 10 keppendum. Hilmir er þriðji stigahæstur. Hilmir hafði fyrir umferðina 4 vinninga af 6 mögulegum.
Í sjöundu umferðinni í gær seinni umferð dagsins mætti Hilmir danska FIDE-meistarann Viktor Haarmark Nielsen (2343) og hafði hvítt. Hilmir tefldi 7.Hb1 gegn semi-Tarrasch og fékk fína stöðu en missti örlítið tökin í miðtaflinu. Þá kom leikur hjá andstæðingnum sem fékk falleinkunn 23…Hfe8?
Hér á Hilmir vænlegt framhald sem hann sá: 24.Rb5 Db4 25.Rc7 Bb7
Hér virðast flestar leiðir liggja til Rómar. 26.Rxe8 er gefið sem +3.6 á hvítt í tölvunum, hvítur vinnur lið. Hilmir taldi sig sjá aðra góða leið og lék 26.Hxd8 Hxd8 27.Bxe5
Þetta er góð leið, á móti öllum leikjum nema einum! Hvítur er með unnið nema að svartur finni 27…Dc5!! sem Daninn fann því miður. Borðið er veikt hjá hvítum og svartur nær að forðast liðstap og verður peði yfir með biskupaparið á opnu borði, frekar auðunnið endatafl sem Daninn hafði. Svekkjandi og klaufalegt tap.
Mótinu lýkur í dag með tveimur umferðum. Hilmir fær tvo danska FIDE meistara. Fyrst Nikolai Kistrup (2354) og svo Jens Albert Ramsdal (2379)

















