Íslandsmeistari í fyrsta sinn Vignir Vatnar við taflið í félagsheimili Hauka. — Ljósmynd/Ómar Óskarsson.

Í tilefni af 50 ára afmæli þess að Vestmannaeyjagosinu lauk árið 1973 efndi Taflfélag Vestmannaeyja til Goslokamóts sem fram fór í gær. 23 keppendur mættu til leiks og þar á meðal þrír stórmeistarar, þeir Vignir Vatnar Stefánsson, Helgi Ólafsson og Helgi Áss Grétarsson. Mótið fór fram við glæsilegar aðstæður í opna rýminu í Þekkingarsetri Vestmannaeyja að Ægisgötu 2. Beddamótið í maí 2019 og Pallamótið í júní 2021  fóru fram á þessum sama stað. Tefldar voru átta umferðir með 15+5 tímamörkum.

Helgi Ólafsson hafði yfirhöndina framan af móti, leiddi með hálfum vinningi allt þar til hann mætti Helga Áss Grétarssyni í sjöundu umferðinni. Þar hafði Helgi Áss betur í baráttu „Helganna“ og kom sér fyrir í efsta sæti ásamt Vigni Vatnar sem hafði aðeins leyft tvö jafntefli en lagt Helga Áss að velli í innbyrðis viðureign.

Í lokaumferðinni unnu þeir Helgi Áss og Vignir báðir sigur gegn sínum andstæðingum og komu því í mark með 7 vinninga af 8 mögulegum. Þar sem Vignir vann innbyrðisviðureignina hafði hann betur á oddastigum og er sigurvegari á Goslokamótinu.

Gaman var að sjá ungu mennina, Benedikt Þórisson og Adam Omarsson eru í góðri framför og hækkuðu báðir vel á stigum. Enginn hækkaði þó eins og Theodor Eiríksson sem hækkar um rúm 86 elóstig fyrir sína frammistöðu á mótinu.

Chess-Results

- Auglýsing -