Í dag er frídagur á EM ungmenna hér á Mamaia í Rúmeníu. Óvenjulegt að það sé frídagur á mótinu en það er tilkomið útaf viðburði í keppnissalnum. Í gær þegar undirritaður og Omar ætluðu að kíkja á frábæra bóksölu sem er við skáksalinn var búið að setja upp borð og veitingar, líklegast fyrir brúðkaup!
Í fimmtu umferðinni í gær fékk íslenski hópurinn yfir 50% af vinningum í boði þriðju umferðina í röð eftir rólega byrjun í fyrstu tveimur umferðunum. Það er því ákveðinn meðbyr nú þegar mótið er u.þ.b. hálfnað.
U18
Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) var einn íslensku keppendana í beinni útsendingu. Hann mætti Belga, Adrien Anciaux (2238) og hafði svart. Belginn hafði m.a. annars lagt Eline Robers að velli fyrr á mótinu. Aleksandr vildi klárlega tefla til vinnings í þessari skák og beitti Benkö-bragði. Svartur fórnar peði en reynir að fá bætur, sem hann klárlega fékk. Aleksandr vann peðið sitt til baka en þá fórnaði hvítur skiptamun og hafði peð og biskupaparið gegn riddara og hrók.
Skákin varð löng og ströng og okkar maður ekki sakaður um að reyna ekki! Jafntefli varð niðurstaðan eftir 117 leiki. Brúðkaupsundirbúningurinn í salnum þurfti aðeins að bíða!
Benedikt Briem (2207) vann góðan sigur í sinni skák. Benni mætti sama andstæðing og Sasha tefldi við í fyrstu umferð, Ungverjinn Akos Kocsmar (2115). Frasinn „módel skák“ var mikið notaður í gær og þó þjálfarinn skrifi kannski ekki alveg undir það þá var taflmennskan mjög góð. Svartur jafnaði vissulega taflið en eftir það herti Benedikt tökin og sýndi að það var klárlega klassamunur á þessum skákmönnum.
U14
Matthías Björgvin Kjartansson (1680) tefldi eins og herforingi í sinni skák gaf úkraínudrengnum Matvii Nechaiev (1243) engan grið. Menntaðir hróksleikir og fínar fórnir færðu Matthíasi sigur. Tvær sigurskákir í röð núna hjá honum!
U12
Josef Omarsson (1764) tefldi við Tyrkja, Deniz Tonuk (1470). Eins og venjan er eru Tyrkirnir sterkir og stigin gefa enga mynd af þeirra styrkleika. Deniz þessi tefldi vel, vann peð og hafði betri stöðu. Josef barðist hinsvegar með kjafti og klóm og sýndi mikið baráttuþrek og vilja og skákin varð mun lengri en efni stöðu til. Því miður dugði baráttan ekki til að þessu sinni.
U10
Birkir Hallmundarson (1565) heldur áfram að tefla vel og hann vann sína þriðju skák í röð. Andstæðingur hans, Búlgarinn Borislav Zhelyazkov (1336) tefldi vel gegn drekaafbrigði Birkis en í spennandi miðtafli náði Birkir að „trikka“ hann og þvinga uppgjöf.
U12 stúlkna
Emilía Embla B. Berglindardóttir (1238) tapaði skiptamun gegn Yara Marusin (1311) í byrjuninni. Óvenjulegt trikk og úkraínska stelpan fann nákvæma leiki í byrjuninni, t.d. lítinn h3 leik sem gerði það að verkum að svartur gat ekki varist á c7 reitnum þegar hvíti riddarinn lenti á d5. Smá óstuð og baráttan var erfið eftir það.
Úrslitin:

Staðan:

Ágætis meðbyr eins og áður sagði, 3,5 vinningur í hús í 5.umferðinni. Aleksandr hefur 3,5 vinning og er í seilingarfjarlægð við toppinn en sigur í 5. umferðinni hefði verið ansi mikilvægur.

Mótið heldur áfram með sjöttu umferðinni á mánudaginn. Andstæðingarnir farnir að þyngjast töluvert enda vinningasöfnun verið góð í síðustu umferðum.
















