Íslenska sveitin á HM öldungasveita gerði í dag jafntefli við þétta sveit Englendinga. Þessi úrslit þýða að Ísland, England og Bandaríkin eru efstu sveitr eftir fjórar umferðir.

Enska liðið var auk okkar manna eina liðið með fullt hús eftir þrjár umferðir.

Jóhann að tafli í Struga Mynd: Livshitz / Heimasíða mótsins

Fyrstu að klára var Jóhann á öðru borði. Jóhann hafði svart gegn stórmeistaranum John Emms. Það var ljóst að hvítur var ekki að tefla upp á mikið og ekki ólíklegt að það hafi verið hluti af strategíu Englendinganna að „neutralísera“ Jóhann á öðru borði.

Upp kom frönsk vörn og eftir að Emms fékk tilboð um hópkaup á miðborðinu var ljóst í hvað stefndi.

Þröstur að tafli Mynd: Mark LIvshitz / Heimasíða mótsins

Þröstur hafði líka svart á fjórða borði og tefldi traust. Arkell var lítið að rugga bátnum og tók jafnteflisboði Þrastar í miðtaflinu.

Adams er langstigahæstur keppenda á mótinu! Mynd: M.Livshitz /heimasíða mótsins

Helgi Ólafsson fékk það erfiða verkefni að glíma við Michael Adams á efsta borði. Adams er enn feykisterkur og hefur verið 2700+ stiga skákmaður meira og minna allan sinn feril.

Helgi lenti í smá klemmu í byrjun og uppskipti á c3 sem gáfu svörtum valdað frípeð reyndust of miklir erfiðleikar til að yfirstíga. C-peðið varð svo taktískur áhrifavaldur í lok skákarinnar.

Það kom því í hlut Margeirs að verða hetjan að þessu sinni. Hann varð að leggja að velli Glenn Flear til að jafna leika. Margeir hafði alltaf þægilegra aðeins betra, hann hafði biskupaparið og náði að þröngva sér inn á sjöundu reitaröðina þegar leið á skákina og knýja uppgjöf.

Fín úrslit hjá íslenska liðinu.

Íslenska liðið er enn í efsta sæti en bandaríska liðið er búið að ná okkur og Englendingum á toppnum.

Englendingar mæta Bandaríkjamönnum og við þurfum að bíða enn um sinn með að mæta þeim.

Sveit frá Svartfjallalandi býður okkar manna á morgun. Sveitin er nokkuð jöfn að mestu skipuð „Júgga-immum“. Pappírinn er okkur hliðhollur en þetta eru rútíneraðir skákmenn sem má ekki vanmeta.

Taflmennskan hefst klukkan 13:00 alla daga og beinar útsendingar eru á lichess, Chess.com og Chess24 og eru skákskýringar Alex Colovic á chess24 hlekknum.

Íslenska liðið er númer fimm í styrkleikaröðinni og liðið skipa fjórmenningaklíkan auk Þrastar Þórhallssonar, allt stórmeistarar.

  1. Helgi Ólafsson (2491)
  2. Jóhann Hjartarson (2432)
  3. Margeir Pétursson (2396)
  4. Jón L. Árnason (2419)
  5. Þröstur Þórhallsson (2382)

Bandaríkin og England hafa feykisterk lið og bandaríska liðið er mjög sigurstranglegt. Alls eru 22 sveitir skráðar til leiks.

- Auglýsing -