
Ísland á tvo fulltrúa á Heimsmeistaramóti 20 ára og yngri sem hófst í gærkvöld í Mexíkó. Þetta eru stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2484) sem er númer 19 í styrkleikaröðinni og Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) sem er númer 36 í styrkleikaröð. Stigahæstur keppenda er hinn umdeildi Hans Moke Niemann (2667) sem hefur verið mikið milli tannanna á fólki undanfarið. Skráðir keppendur eru 149 en kannski full margir stigalágir frá Mexíkó.

Fyrsta umferð virtist ganga nokkuð brösulega hjá heimamönnum. Útsendingar gengu illa og framan af voru aðeins þrjú efstu borðin í beinni útsendingu. Einhver borð komu inn þegar leið á umferð en vonandi verður þetta komið í lag hið fyrsta!
Fyrsta umferðin virtist fara meira og minna eftir bókinni. Eiginlega allir stigahærri unnu sínar skákir og nánast eina undantekningin var á 9. borði þar sem sterkur georgískur skákmaður missti sína skák í jafntefli.
Nokkur fjöldi borða endaði með því að annar keppandinn mætti ekki til leiks. Vignir lenti í því á 19. borði, enginn andstæðingur og Vignir fékk því auðveldan vinning í fyrstu umferð.
Aleksandr fékk 1600-stiga mann í fyrstu umferð og vann sigur eins og við mátti búast. Upp kom drottningarbragð og andstæðingur Aleksandr, heimamaður, gaf skiptamun í miðtaflinu og úrvinnslan var nokkuð einföld eftir það.
Framundan er tvöfaldur dagur en líklegast fá okkar menn ekki „almennilega“ andstæðinga fyrr en í fjórðu umferð. Varast ber þó vanmat!
Tefldar verða 11 umferðir og er dagskráin eftirfarandi (tímar íslenskir)
- umferð 21. september LOKIÐ
- umferð 22. september klukkan 16:00
- umferð 22. september klukkan 23:00
- umferð 23. september klukkan 22:00
- umferð 24. september klukkan 22:00
- umferð 26. september klukkan 22:00
- umferð 27. september klukkan 22:00
- umferð 28. september klukkan 22:00
- umferð 29. september klukkan 22:00
- umferð 30. september klukkan 22:00
- umferð 1. október klukkan 16:00
Frídagur er mánudaginn 25. september













