Þór, fyrstur að gæða sér á sneið í tilefni af 80 ára afmælinu.

Björgvin Víglundsson heldur forystunni á Íslandsmóti öldunga. Í þriðju umferðinni gerði Björgvin jafntefli við afmælisbarnið, Þór Valtýsson. Ögmundur Kristinsson vann gríðarlega mikilvægan sigur með svörtu mönnunum gegn Braga Halldórssyni og blandar sér af fullum krafti í toppbaráttuna.

Umferðin var opnuð með þreföldu húrra fyrir afmælisbarninu og ríkjandi Íslandsmeistara öldunga, Þór Valtýssyni. Þór átti stórafmæli í gær, átti áttræðisafmæli og virtist sáttur að eyða afmælisdeginum í uppáhaldsáhugamálið! Skáksambandið splæsti í köku af þessu tilefni og Þór fékk að sjálfsögðu fyrstu sneiðina!

Fyrsta skákin til að klárast í umferðinni var mkilvæg skák Braga og Ögmundar.

Bragi Halldórsson (2047) – Ögmundur Kristinsson(1934)

Ögmundur var ef til vill aðeins of gráðugur í byrjuninni og peðaframrás hans reyndist of snemma á ferðinni og Bragi vann peð í byrjuninni. Ögmundur er reyndar þekktur fyrir sína gambíta og ekki óvanur að gefa peð í byrjuninni þannig að hann fór engan veginn á taugum. Taflið þróaðist áfram en svo komu vatnaskil. Fimmtándi leikur Braga var ekki nógu markviss og Ögmundur fékk gott færi.

15…Rxd5! var vel til fundið hjá Ögmundi og fékk hann þrjá létta menn fyrir drottningu í kjölfarið. Yfirleitt er auðveldara að tefla með léttu mennina og það reyndist tilfellið. Ögmundur vann drottninguna til baka í 25. leik og liðstapið of mikið fyrir hvítt, Bragi gafst upp.

Sterkur sigur hjá Ögmundi með svart gegn traustum skákmanni og þessi sigur kemur honum inn í toppbaráttuna af fullum krafti!

Kristján Örn Elíasson(1758) – Lárus S Guðjónsson (0)

Kristján og Lárus lentu í hörðum slag. Lárus náði betri stjórn á taugunum í þessari skák þannig að úr varð hörkuviðureign. Kristján fór líklega aðeins of geyst af stað í byrjuninni og vanmat Lárus líklega og ætlaði bara að máta hann!

Niðurstaðan varð eiginlega sú að svartur fékk yfirburðatafl en Kristján hélt áfram að búa til hótanir.

17.Rxh7!? var djörf ákvörðun hjá Kristjáni en líklega besta praktíska leiðinni í erfiðri stöðu! Eftir 17…Kxh7 18.Bg5 hefði 18…f6 átt að duga á svart en 18….Dd7?? var í raun tapleikur.

Hér missir Kristján af máti í 6 leikjum. 19.Dh4+ og svo 20.Bf6 leiðir til stöðu þar sem svartur getur bara leikið leikjum sem tefja mátið. Þess í stað kom 19.Bf6??

Hér átti Lárus stórkostlega vinningsleið. 19…Df5!! er kexunnið á svart þar sem hann endar liði yfir í öllum varíönturm. Þess í stað komst Kristján í jafnteflislegt endatafl með mislitum biskupum þar sem Kristján náði að plokka eitt og eitt peð af svörtum og loks vinna endataflið.

Þór Valtýsson (1914) Björgvin Víglundsson (2176)

Siðasta skákin til að klárast var jafnframt sú mikilvægasta. Björgvin tefldi hratt og af fítonskrafti gegn London-kerfi Þórs. Björgvin fékk mjög þægilega stöðu með meira rými. Það er hinsvegar bæði mikil seigla í London og eins í taflmennsku Þórs og Björgvin náði aldrei að gera sér mat úr rýminu og bauð að lokum jafntefli þegar Þór var líklegast búinn að verjast öllum tilburðum svarts.

Þessi úrslit halda mótinu vel opnu. Björgvin er vissulega í góðri stöðu en Ögmundur og Þór anda áfram niður í hálsmálið á Björgvin ef hann misstígur sig.

Í 4. umferð mætast stálin stinn. Björgvin hefur hvítt á Ögmund í gríðarlega mikilvægri skák fyrir framvindu mótsins. Þór þarf nauðsynlega að vinna gegn Kristjáni Erni ef hann ætlar sér að verja titilinn.

Fjórða umferð fer fram á laugrdaginn klukkan 14:00 og svo lýkur mótinu á sunnudaginn.

- Auglýsing -