Olga Prudnykova er enn með fullt hús eftir þrjár umferðir á Íslandsmóti kvenna. Hún lagði Guðrúnu Fanney Briem að velli í kvöld. Guðlaug Þorsteinsdóttir virðist ætla að verða hennar helsti keppinautur en hún er hálfum vinningi á eftir Olgu og þær mætast í næstu umferð.

Olga Prudnykova (2268) Guðrún Fanney Briem (1706) –

Olga fór í hliðarvaríant gegn Caro-kann vörn Guðrúnar. Greinilegt var að Olga kom Guðrúnu á óvart, Guðrún tók tæpar 20 mínútur í sjötta leik sinn.

Leikurinn var nánast nýjung 6…Dc8?! en tölvan gefur +1 á hvítt skiljanlega þar sem hvítur hefur greinilega betra tafl. Hvítur hangir á umframpeðinu og svartur á erfitt með liðsskipan.

Guðrún náði aldrei að vinna sig út úr vandræðum sínum með liðsskipan og Olga vann enn einn auðveldan sigurinn. Guðrún getur þó huggað sig við það að hún hélt út í 29 leiki en fyrri andstæðingar hafa verið mátaðir í 25. leik eða fyrr!

Iðunn Helgadóttir (1694) – Guðlaug Þorsteinsdóttir(1984)

Iðunn tefldi mjög fína skák gegn Guðlaugu. Iðunn beitti Colle-Zukertort kerfinu á hvítt sem getur gefið vænlegar sóknarstöður. Guðlaug varðist sóknartilburðum en varð að gefa eftir í rými í stöðunni. Það sem Guðlaug hafði hinsvegar með sér var að öll peð hvíts voru á svörtum reitum, samlita biskupnum á borðinu.

Staðan hékk lengi í 0.0 í tölvunum enda var staðan líklegast steindauð. Guðlaug ákvað hinsvegar að láta reyna á reynsluna og sætti sig ekki strax við skiptan hlut. Iðunn hefði líkelgast átt að tefla meira aktíft, t.d. taka á f7 í stað þess að valda stöðuna en staðan var samt jafntefli.

Í 52. leik bauð Iðunn jafntefli og lék 52.Kc3?? Hér var nauðsynlegt að leika hróknum á f-línunni og halda svarta kóngnum úti. Gerður leikur gaf svörtum kost á 52…Bd8! 53.Hf2 en hér missti Guðlaug af 53…Ke4! sem ætti að vinna.

Lokamistökin komu í 62. leik.

Hér hefði 62.Hxg6 dugað til jafnteflis. Hvítur tapar biskupnum en nær b-peðinu og H+B gegn H er fræðilegt jafntefli. 62.He8?? leiddi hinsvegar til gjörtapaðs peðsendatafls eftir 62…Bf4!

Lenka Ptacnikova (2139) Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (2014

Lengsta skákin varð hjá Lenku og Jóhönnu. Lenka beitti Jobava-London. Jóhanna var vel undirbúin en lék illa af sér í 9. leik

9…b4? gaf hvítum færi eftir 10.axb4 cxb4 11.Rb5! og hvítur vinnur skiptamun. Staðan í raun kolunnin en Jóhanna er oft seig í spriklinu og hélt áfram að berjast. Lenka fór illa með tímann sinn og eyddi alltof miklum tíma í einfaldar ákvarðanir og lenti í tímahraki.  Hvítur hafði alltaf góða stjórn á stöðunni en tímanotkunin setti óþarfa pressu á hvítan og á endanum leiddi það til mistaka. Jóhanna á skilið mikið kredit fyrir að berjast og berjast í skítastöðu og baráttan skilaði sér að lokum.

Lenka átti enn 6 mínútur eftir að en fann ekki bestu leiðina í stöðunni. Lenka drap á b7 en var líklega of fljót að skipta upp á drottningum í kjölfarið og staðan einfaldaðist. Jóhanna náði c-peðinu og þá var jafnteflið í höfn. Hér var líklega síðasti séns að ná í vinninginn auðveldlega. 48.Rc6! ætti að klára dæmið örugglega fyrir hvítan. Riddarinn lokar löngu skálínunni og kemur í veg fyrir mát og ef biskup drepur riddarann kemur Hb8 með máti. Ef drottning drepur á c6 kemur Hb8+ og svo Hc8 og vinnur mann til baka með auðunnu endatafli. Lenka hefði alltaf fundið þetta með nægan tíma á klukkunni.

Úrslit umferðarinnar

Staðan

Guðlaug mætir Olgu í næstu umferð og þar er gríðarlega mikilvæg skák á ferðinni. Lenka heldur í vonina að ná í einvígi ef hún vinnur innbyrðis skákina við Olgu í lokaumferðinni.

4. umferð fer fram á laugardaginn klukkan 14:00 í Skáksambandi Íslands í Faxafeni 12.

Enn er allt galopið og úrslit munu ráðast í viðureignum Olgu við Guðlaugu og Lenku sem eru í síðustu tveimur umferðunum!

- Auglýsing -