Sóley Kría Helgadóttir er efst með 3 vinninga af 3 eftir fyrri keppnisdaginn í áskorendaflokki kvenna. Mótið fer fram samhliða Íslandsmóti kvenna í Skáksambandi Íslands og eru alls 12 ungar skákstelpur að ná sér í keppnisreynslu.
Tefldar eru 5 umferðir með tímamörkunum 30+30 sem eru lágmarkstímamörk til að hægt sé að reikna skákir til kappskákstiga.

Sóley lagði Emilíu Emblu Berglindardóttur að velli í þriðju umferðinni í spennandi skák og tók þar með ein forystuna.

Mótinu lýkur í dag með tveimur umferðum klukkan 14 og svo seinni um 15:15. Keppnisstaður er Skáksamband Íslands í Faxafeni 12.
- Auglýsing -













