Lokaumferðin á Íslandsmóti kvenna varð æsispennandi. Fyrir umferðina hafið Olga Prudnykova hálfs vinnings forskot á Lenku Ptacnikovu og Guðlaugu Þorsteinsdóttur. Olga og Lenka mættust í lokaumferðinni og Lenka varð að ná sigri til að ná sínum 15. Íslandsmeistaratitli. Guðlaug Þorsteinsdóttir varð að treysta á að Olgu ynni ekki til að ná aukakeppni, en þá hefði Guðlaug þurft sigur gegn Guðrúnu Fanney Briem.
Fyrsta skákin til að klárast hafði ekki bein áhrif á toppbaráttuna.
Iðunn Helgadóttir (1694) – Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (2014)
Byrjunin misheppnaðist eitthvað hjá Iðunni með hvítt. Svartur náði svartreitabiskupnum og hvítur var mjög veikur fyrir á svörtu reitunum. Jóhanna hefði getað nýtt sér það og eiginlega fengið þráðbeinan vinning með 17…Dd4+
Svartur hélt áfram betra tafli og virtist alltaf við það að ná yfirburðatafli en Iðunn varðist og varðist þar til komið var í jafnt endatafl. Í endataflinu kom slæmur fingurbrjótur hjá Jóhönnu og allt í einu hafði Iðunn unnið hróksendatafl eftir nokkra nákvæma leiki.
Rússíbanaskák sem endaði með sigri Iðunnar.
Guðrún Fanney Briem (1706) Guðlaug Þorsteinsdóttir(1984) –

Guðlaug þurfti að vinna með svörtu gegn Guðrúnu til að halda aukakeppnis vonum sínum lifandi. Svarta staðan var mun þægilegri eftir byrjunina og staðan betri á Guðlaugu eiginlega allt fram að lokum tímamarka í kringum 40. leik. Þá snerist staðan Guðrúnu í vil.
Úrvinnslan gekk ekki alveg upp á 10 en það hafðist að lokum. Guðlaug hafnaði fyrst þráleik og fékk tapað. Í raun kom sama staðan upp þrisvar en hvorug krafðist jafnteflis. Guðrún fékk unnið tafl en gaf möguleika á þráskák á tveimur stöðum. Spennandi skák en að lokum hafði Guðrún loks sigur á þessu móti, átti það sannarlega inni!
Lenka Ptacnikova(2139) Olga Prudnykova (2268)

Úrslitaskákin! Olga tefldi traust með hvítu og fékk þægilega betra tafl gegn Philidor-vörn Lenku. Olga vann peð í miðtaflinu og hafði fína stjórn á hvítum reitum og góða blokkeringu. Staðan hinsvegar með undirliggjandi spennu og mikið eftir.
Olga náði að tefla framhaldið eins og herforingi og byggði upp vinningsstöðu og e-peð hennar komst á flugbraut upp borðið.
38…Bg5?? í tímahraki hjá Lenku hefði í raun átt að vera tapleikur eftir 39.f4 en Olga gleymdi sér stundarkorn hér og ýtti e-peðinu
39.e7?? en eftir 39…Bf1+ 40.Kf3 Bxe7 náði Lenka tímamörkunum og er búinn að véla af Olgu hennar helsta tromp, umframpeðið á e-línunni.
Olga tók sér góðan tíma eftir sinn afleik og náði vopnum sínum til baka. Hún þurfti bara að passa að tapa ekki. Hún fór í ferðalag með kóng sinn og setti pressu á svarta kónginn, á kostnað peðs.
Á daginn kom að kóngurinn var hálf fastur og það batt svörtu mennina niður. Jafnteflið var nokkuð öruggt og smá sénsar á að tefla til vinnings. Titillinn ætti að vera í höfn og varð það þegar Lenku gleymdi sér skyndilega og féll á tíma, líklegast í jafnteflisstöðu.
Úrslit umferðarinnar

Lokastaðan

Fyrsti Íslandsmeistaratitill Olgu og það í fyrstu tilraun.

Olga vinnur sér þar með keppnisrétt í Landsliðflokk að ári en hún hafði einmitt rétt misst af því að vinna það sæti í gegnum Áskorendaflokk á dögunum.














