Norðurlandamót skólasveita hélt áfram í dag í íþróttahúsinu á Laugarvatni. Teflt er við mjög fínar aðstæður og keppnin virðist ætla að þróast þannig að mikil spenna verður og það fram á síðustu skák!
Keppt er í A-grúppu (allt að 10. bekk) og B-grúppu (allt að 7. bekk). Ísland á tvær sveiti í hvorum flokki.
Í eldri hópnum, A-grúppu, gekk ekki vel hjá íslensku sveitunum í dag. Vatnsendaskóli náði aðeins í einn borðavinning í dag og Vatnsendaskóli var í smá ströggli rétt undir 50% með 3,5 vinning af 8.

Baráttan í efsta flokki virðist ætla að vera á milli Vuoniityn peruskoulu frá Finnlandi sem eru í öðru sæti en aðeins hálfum vinningi á eftir dönsku sveitinni, Giersings Realskole. Giske frá Noregi og Landakotsskóli þurfa heldur betur að hala inn vinningum á morgun ef þeir ætla að eiga séns.
Vuoniityn og Giersigns mætast í lokaumferðinni og mjög líklegt að það verði hrein úrslitaviðureign!


Aku Salonen (2133) hefur staðið sig vel hjá Finnunum og hefur fullt hús.
Yngri flokkur
Spennan verður vafalítið mikil í yngri flokknum líka. Lindaskóli fékk 3 vinninga í 2. umferðinni og hið sama gerði Kringsja skole frá Noregi. Það leit e.t.v. út fyrir að þessar tvær myndu berjast en þá tóku Danirnir í Giersigns Realskole sig til og flengdu norsku sveitina 4-0!

Þessi úrslit þýða að það er ljóst að Lindaskóli og Giersigns Realskole munu berjast um gullið. Það sem meira er, líkt og í eldri flokki þá mætast þessar sveitir í lokaumferðinni þannig að líklegast fáum við úrslitaviðureign í báðum flokkum.


Hjá Lindaskóli eru þeir Örvar Hólm Bryjnarsson og Birkir Hallmundarson báðir með 3 vinninga af 3 mögulegum.

Mótið klárast á morgun með umferðum klukkan 09:00 og 15:00.
- Facebook síða mótsins
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results A (u17) | Chess-Results B (u13)
- Beinar útsendingar á lichess A
- Beinar útsendingar á lichess B

















