Það mættu 50 galvaskir skákmenn á ARENA í gærkvöldi þegar fram fór fyrsta mótið í Arena mótaröðinni.
Einstaklega glæsilegur staður og viljum við CAD bræður þakka Arena fyrir að halda þessa glæsilegu mótaröð.
Til að gera langa sögu stutta þá mætti Hilmir Freyr Heimisson nýmættur til landsins frá Danmörku og pakkaði mótinu saman með fullu húsi!
Í 2.sæti nýlentur frá HM Ungmenna var Vignir Vatnar Stefánsson með 7.5 vinning af 9 mögulegum.
Fyrrum markaðsstjóri Chess After Dark Benedikt Briem tók svo bronsið og átti frábært mót, endaði með 7 vinninga.
Eigendur ARENA voru svo einstaklega hrifnir af öllum þeim ungu iðkendum sem mættu til leiks og voru allir krakkar á grunnskólaaldri leystir út með gjafabréfi frá Arena.
Ólafur Örn Ólafsson vann U1600 flokkinn og hækkaði um tæp 60 stig á mótinu.
Alexander Oliver Mai vann U2000 flokkinn og átti mjög flott mót.
Chess After Dark vilja þakka öllum þeim sem mættu og vonandi náum við enn fleirum næst.
Næsta mót fer fram miðvikudaginn 1. nóvember
Takk fyrir okkur.
Bestu kveðjur,
CAD bræður.
















