Víkingaklúbburinn vann mjög góðan sigur í lokaumferðinni á EM Taflfélaga sem lauk í gær. Sigurinn lyfti Víkingum upp í 17. sætið sem er 16 sætum ofar en byrjunarröð þeirra. Akureyringar gerðu jafntefli í sinni viðureign en kvennasveit TG endaði á góðum nótum og lögðu finnska sveit að velli.
Víkingaklúbburinn mætti SK Javes Modra frá Slóvakíu. Slóvakarnir voru stigahærri á öllum borðum nema því síðasta. Þrátt fyrir það náðu Víkingar í glæsilegan 3,5-2,5 sigur. Óstuð var á Þorfinnssonum, Jóhann gerði traust jafntefli en aðrir neyddu andstæðinga sína til að lúta í dúk!

Sigurinn lyfti Víkingum í 17. sætið á oddastigum en miðað við vinningafjölda, 10 af 14 mögulegum þá enduðu Víkingar í 6-17. sæti. Jóhann var mjög traustur fyrir Víkingaklúbbinn og var taplaus og með árangur sem samsvarar rétt tæplega 2700 elóstigum. Davíð Kjartansson var einnig flottur með 5 vinninga af 7.
Skákfélag Akureyrar mætti Partizani, albönsk sveit. Akureyringar voru stigahærri á öllum borðum og hefðu á eðlilegum degi líklegast alltaf lagt þessa sveit að velli. Einhver seigla var í heimamönnum að þessu sinni og 3-3 jafntefli niðurstaðan. Fjórar skákir enduðu með skiptum hlut, Andri tapaði en Mikael Jóhann vann sína skák.

Lokaniðurstaða Skákfélags Akureyrar var 59. sæti sem er aðeins fyrir neðan byrjunarsætið sem var númer 54. Aflahæstir Akureyringa voru vizkualdurs meistararnir Áskell Örn Kárason og Haraldur Haraldsson báðir með 3,5 vinning, Áskell í fimm skákum en Haraldur í sex skákum.

Magnus Carlsen náði loks í alvöru liðstitil, lið hans Offerspil enduðu einir efstir eftir að hafa unnið nauman 3,5-2,5 sigur í lokaumferðinni. Magnus fékk aukinheldur borðaverðlaun fyrir besta árangur á efsta borði. Tyrkirnir sem stráfelldu bæði okkar lið enduðu í 3. sæti sem sýnir hversu sterkir þeir eru.

Kvennaflokkur
TG mætti finnsku sveitinni HSC Helsinki Street Chess og náðu í sinn fyrsta sigur! Jóhanna gerðir gott jafntefli með svörtu á efsta borði og Hallgerður og Guðlaug náðu í góða sigra. 2,5-1,5 niðurstaðan!

TG enduðu í 22. sæti en voru fyrirfram aftastar í stigaröðinni, númer 26. Stelpurnar geta vel við unað. Guðlaug var í banastuði og fékk 4 vinninga af 6 og vann síðustu þrjár skákir sínar!
Sigurvegari í kvennaflokki varð rúmenska sveitin Superchess sem unnu 6 af 7 viðureignum sínum og töpuð aðeins einni.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn flokkur) | Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar Chess24 (Opinn flokkur)
- Beinar útsendingar Chess24 (Kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar lichess (Opinn flokkur)
- Beinar útsendingar lichess (Kvennaflokkur)v















