Taflfélag Garðabæjar

Skákþing Garðabæjar 2023 hefst fimmtudaginn 26. október

Tefldar verða 7 umferðir og verður mótið reiknað til íslenskra og alþjóðlegra stiga.

Mótsstaður: Miðgarður íþróttahús Vetrarmýri 18. 3. hæð. Garðabæ.

Umferðatafla:

1. -4 umf. fimmtudaginn 26. okt. kl. 18:15 – atskákir.

5. umf. fimmtudaginn 2. nóv. kl. 18:15

6. umf. fimmtudaginn 9. nóv.. kl. 18:15

7. umf. fimmtudaginn 16. nóv. kl. 18:15

Verðlaunaafhending og Hraðskákmót Garðabæjar fer fram mánudaginn 4. desember. kl 19:00

Keppnisfyrirkomulag er svissneskt kerfi. Aðalskákstjóri er Páll Sigurðsson.
upplýsingar tafl@tafl.is

Tímamörk fyrir atskákirnar eru 15 mínútur með 10 sek sem bætast við hvern leik. Tímamörk fyrir kappskákirnar eru 90 mínútur og 30 sek sem bætast við hvern leik.

Mótið er opið öllum og er ein hjáseta leyfð til og með 5 umf. Tilkynna þarf hjásetu fyrir lok umferðarinnar á eftir. Frestun skáka er illmöguleg.

Verðlaun auk verðlaunagripa:

Heildarverðlaun fyrir efstu 3 sæti uþb. 70% af keppnisgjöldum, skipt eftir Hort Kerfinu.

Verðlaun skiptast (50/30/20). Lágmarksverðlaun í fyrsta sæti er 15.000. kr.

Röð mótsstiga (tiebreaks):  1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis viðureign 4. Fleiri sigrar

Mótið er um leið Skákþing Taflfélags Garðabæjar. (keppt er um titilinn ef jafnt).

Sæmdartitilinn Skákmeistari Garðabæjar geta aðeins fengið félagsmenn taflfélags í Garðabæ eða skákmaður með lögheimili í Garðabæ.

Þátttökugjöld:

Félagsmenn Fullorðnir 4000 kr. 17 ára og yngri ókeypis.

Aðrir. Fullorðnir 6000 kr. Unglingar 17 ára og yngri 3000 kr

IM/WIM og GM/WGM greiða ekki þáttökugjöld.

Skráning í Skákþing Garðabæjar

Hlekkur til að skoða skráningu

Skákmeistari Garðabæjar og Skákmeistari Taflfélags Garðabæjar árið 2022 er Hjörvar Steinn Grétarsson stórmeistari.

- Auglýsing -